154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[17:48]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni. Þetta með brot gegn börnum er eitthvað sem við verðum að geta unnið að. Þar eru engin landamæri. Þegar kemur að stafrænum kynferðisbrotum og stafrænu ofbeldi eru engin landamæri. Til mín hafa komið þolendur stafræns kynferðisofbeldis sem finna engar lausnir og koma að lokuðum dyrum vegna þess að gerandinn er í öðru landi en þolandi. Rétt eins og við tryggjum frjálst flæði gagna þurfum við að passa upp á það að engar takmarkanir séu á því að sækja rétt sinn eftir slík brot, hvort sem það eru brot gegn börnum eða fullorðnum. Eins og hv. þingmaður benti á varðandi barnaníðsefni eru til alþjóðlegir hringir níðinga sem búa til gögn og skiptast á þeim. Við þurfum að passa að Ísland verði ekki staður þar sem þeir geta lifað óáreittir, og ekki heldur staður þar sem við getum ekki tekið á þessum skelfilegu hlutum.