154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[17:50]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Mig langar í ræðu minni að fara aðeins yfir helstu atriði þessa frumvarps og byrja einfaldlega á nafninu; frumvarp til laga um frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna. Þetta er innleiðingarfrumvarp, innleiðing á reglugerð um ramma um frjálst flæði ópersónulegra upplýsinga í Evrópusambandinu — ópersónulegra upplýsinga í Evrópusambandinu. Við ætlum hins vegar að búa til frumvarp þar sem fjallað er um ópersónugreinanlegar upplýsingar. Það er mikill munur á ópersónulegum upplýsingum og ópersónugreinanlegum upplýsingum. Ég tel að á frumvarpinu sé ákveðinn galli vegna þess að reglugerðir sem við erum að innleiða innan Evrópska efnahagssvæðisins fjalla ekkert um ópersónugreinanlegar upplýsingar. Þær fjalla um ópersónulegar upplýsingar. Þetta er tvennt ólíkt. Þú getur verið með ópersónulegar upplýsingar sem er hægt að persónugreina ef það koma viðbótargögn. Það eru þá persónugreinanlegar ópersónulegar upplýsingar. Ég íhuga það hvort hér séum við kannski með gullhúðun, að við séum að tala um ópersónugreinanlegar upplýsingar þegar Evrópusambandið er að tala um ópersónulegar upplýsingar. Þetta skiptir mjög miklu máli ef við horfum á þetta út frá gagnahagkerfinu. Ef við ætlum ekki að telja allar ópersónulegar upplýsingar sem ópersónugreinanlegar upplýsingar þá erum við að ganga lengra en Evrópusambandið, það er alveg klárt mál.

Við getum tekið dæmi um það ef við ætlum að vista allt lóðaskipulag eða deiliskipulag Reykjavíkur. Við vitum ekki hver á lóðirnar en hins vegar ef við myndum bæta við nafnaskrá, götuskrá með nöfnum, myndum við geta vitað hver ætti þessar lóðir. Þá er lóðaskráin persónugreinanleg vegna þess að þar er hægt að sjá hverjir eiga þessar lóðir.

Mér finnst þetta vera galli á frumvarpinu. Mér finnst við alltaf vera að reyna að gera þetta aðeins betur en Evrópusambandið, vera aðeins klókari, fara aðeins lengra af því að við virðumst ekki geta gert þetta nákvæmlega eins og Evrópusambandið vill. Það er alltaf aðeins verið að bæta í. Eins og með þýðinguna á almennu persónuverndarreglugerðinni sem hét opinberlega reglugerð um vernd persónuupplýsinga og frjálsan flutning slíkra upplýsinga, „free movement of such data“ eins og það er orðað á ensku. Allir þýða „free movement“ sem frjálsan flutning en við þýddum það sem frjálsa miðlun upplýsinga eða „free dissemination“. Það er grundvallarmunur á að miðla upplýsingum og að flytja upplýsingar. Hérna virðumst við aftur vera komin í smáþýðingarvanda vegna þess að við þýðum frjálst flæði ópersónulegra upplýsinga sem frjálst flæði ópersónugreinanlegra upplýsinga. Það er alveg með ólíkindum að þetta sé ekki skýrt nægjanlega vegna þess að ópersónulegar upplýsingar geta orðið persónulegar ef þú hefur aðrar upplýsingar til hliðsjónar, svo einfalt er það. Símaskrá getur verið án persónuupplýsinga. Þar geta verið ópersónulegar upplýsingar ef þú hefur ekki nöfnin til að tengja saman við. En símanúmerið er ekki ópersónugreinanlegt, ef þú færð nöfnin er símanúmerið tengt persónu. Ef við lesum skilgreininguna á persónuupplýsingum í 2. tölulið 1. mgr. 3. gr. persónuverndarlaga, með leyfi forseta:

„Upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling […]; einstaklingur telst persónugreinanlegur ef unnt er að persónugreina hann, beint eða óbeint, svo sem með tilvísun í auðkenni eins og nafn, kennitölu, staðsetningargögn, netauðkenni eða einn eða fleiri þætti sem einkenna hann í líkamlegu, lífeðlisfræðilegu, erfðafræðilegu, andlegu, efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti.“

Hér virðumst við taka þetta hreinlega beint. Í þessu máli hér er mjög sérstakt að við erum með skilgreiningu á gögnum aðra en þá sem er í ESB-reglugerðinni, þar sem gögn eru skilgreind sem gögn önnur en persónuupplýsingar eins og þær eru skilgreindar í 1. lið 4. gr. reglugerðarinnar, sem er þá almenna persónuverndarreglugerðin. (Forseti hringir.) Við erum hins vegar líka með reglugerðina sem lýtur að persónugreinanlegum upplýsingum. (Forseti hringir.) Ég tel að við ættum að skoða þetta atriði enn þá nánar og líka ef við horfum á efni frumvarpsins í heild. (Forseti hringir.) Ég er sannfærður um að við fáum frumvarp innan nokkurra ára (Forseti hringir.) þar sem við þurfum að innleiða þessa reglugerð aftur með öðrum hætti.

(Forseti (ÁsF): Þingmaðurinn verður að nýta þann tíma sem hann hefur og ekki umfram það.)