154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[17:56]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hann kemur inn á atriði sem er mjög mikilvægt að hafa í huga varðandi þetta mál. Mér heyrist fara fjölgandi dæmunum sem hv. þingmaður er að vekja athygli á um misræmi í framsetningu á þeim reglum sem verið er að innleiða. Það er auðvitað ekki gott mál þó að, eins og kom fram hjá mér áðan, ég hafi svo sem ekki sjálf farið í sérstaka greiningu á því hvaða áhrif það muni hafa í framkvæmd. Við verðum kannski svolítið að sjá það.

Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um varðar áhyggjur hans af því að við séum að innleiða reglur sem eru settar fyrir mörgum árum síðan. Við erum svolítið á eftir. Það er auðvitað viðvarandi vandamál hér og víðar, þessi hægagangur í því að taka upp reglur sem okkur ber samkvæmt samkomulagi. Ég held að það sé víðar sem íslensk stjórnvöld, hvað eigum við að segja — ég veit ekki hvaða orðalag maður á að nota til að vera ekki ósanngjarn og held að það sé kannski ekki endilega alltaf sama orðalagið sem á við — draga lappirnar, sofna á verðinum, forgangsraða með einhverjum hætti eða annað slíkt. Ég vil svo sem ekkert fullyrða um slæman hug eða slæm vinnubrögð beinlínis heldur er þessi hægagangur miðað við þróun mála. Það á kannski ekki síst við þegar kemur að tæknilausnum.

Nú höfum við Píratar lagt fram mál hér á þingi, sem er reyndar ekki komið til umræðu í nefnd vegna þess að meiri hlutinn stoppar öll mál minni hlutans þar, þar sem við leggjum til ofboðslega einfalda og sjálfsagða löggjöf sem tengist gervigreind vegna þess að ríkisstjórn Íslands og íslensk stjórnvöld eru að mínu mati (Forseti hringir.) og held ég margra annarra algerlega að sofna á verðinum hvað það varðar. Ég held að þar geti ég sagt með góðri samvisku að þau séu að sofna á verðinum. (Forseti hringir.) Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekki áhyggjur af þessu líka.