frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, ég deili svo sannarlega þessum áhyggjum hv. þingmanns. Ég tel að aðgerðaleysi okkar varðandi gervigreind sé orðið mjög æpandi, svo ekki sé meira sagt. Ég get tekið dæmi um það að í Noregi hefur verið sett á laggirnar meiri háttar aðgerðaáætlun til að takast á við gervigreind í samfélaginu á sem allra flestum sviðum. Ég tel mjög mikilvægt að við gerum eitthvað í málinu svo að við getum fylgt öðrum þjóðum. Það hefur komið fram, sérfræðingar hafa sagt það — ég man ekki alveg hvaða sérfræðingur þetta var en hann var mjög nýlega í fréttum og sagði að gervigreindin væri miklu meiri bylting heldur en það þegar við tókum upp rafmagnið. Þetta er bylting sem við áttum okkur ekki á og hversu gríðarlegar breytingar hún mun hafa í för með sér.
Varðandi það frumvarp sem hér er til umræðu, um frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna, er alveg kristaltært um nafnið á frumvarpinu og það að við séum að fjalla um ópersónugreinanleg gögn í frumvarpinu meðan reglugerðin talar um ópersónuleg gögn að hugtakið ópersónugreinanleg gögn er þrengra heldur en ópersónuleg gögn. Það er alveg klárt mál. Færri gögn eru ópersónugreinanleg heldur en ópersónuleg. Stóra mengið er ópersónuleg gögn. Hluti af ópersónulegum gögnum getur verið ópersónugreinanleg gögn, það er alveg augljóst mál, og við erum að horfa á þetta miklu þrengra en Evrópusambandið er að gera. Það horfir á miklu stærra mengi, mengi ópersónulegra upplýsinga, ekki ópersónugreinanlegra gagna. Það er algjörlega með ólíkindum að við getum ekki notast við upphaflegu þýðinguna sem er búið að stimpla fram og til baka og skoða ítarlega, líka í frumvarpinu. Þetta á líka við um kröfu um staðsetningu gagna í frumvarpinu, sem er staðbinding gagna. (Forseti hringir.) Það er munur á staðsetningu og staðbindingu. Það vita allir sem vilja vita.