154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[18:00]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég játa það að eftir því sem við ræðum þetta mál nánar aukast áhyggjur mínar af því að það hafi kannski ekki alveg farið fram nógu mikil skoðun á afleiðingum þess að einfalda málið sem notað er í reglugerðinni, eins og kemur fram í greinargerð að hafi verið hugsunin að baki einhverjum orðalagsbreytingum. Eins og ég nefndi í mínu fyrra andsvari fer þeim fjölgandi dæmunum sem hv. þingmaður nefnir. Þingmaðurinn nefndi í ræðu hér fyrr í dag þetta dæmi um ópersónuleg gögn og ópersónugreinanleg gögn. Það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að ópersónugreinanleg gögn eru allt annar hlutur en ópersónuleg gögn. Ópersónuleg gögn eru gríðarlega margt. Ég velti reyndar fyrir mér í hvora áttina þetta gengur vegna þess að þegar við tölum um ópersónugreinanleg gögn getum við líka verið að tala um persónuleg gögn sem eru bara ópersónugreinanleg. Það er ekki nóg með að önnur merkingin sé þrengri eða víðari en hin heldur þýðir þetta sitthvorn hlutinn. Ég verð að játa það hér að ég deili þessum áhyggjum þingmannsins. Upptaka orðalagsins með þessum hætti vekur upp áhyggjur hjá mér. Ég velti fyrir mér hvort við þyrftum hreinlega að skoða þetta nánar.