frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvarið. Það er alveg hárrétt að ópersónugreinanleg gögn eru allt annars eðlis en ópersónuleg gögn. Ísland er lítið samfélag. Sem dæmi erum við kannski með sjúkraskrá þar sem nafn einstaklings kemur ekki fram en hann er með krabbamein í vinstri fæti, er á ákveðnum aldri, hefur ákveðið starf o.s.frv. Í litlu samfélagi geta þessar upplýsingar orðið persónugreinanleg gögn út af smæðinni. Í milljónasamfélagi væru þetta ekki persónugreinanleg gögn vegna þess að það er erfitt í kannski 10 milljóna samfélagi að finna einstakling sem er kannski rafvirki, býr úti á landi og er með krabbamein í vinstri fæti. Það er mjög erfitt að finna þann einstakling í 10 milljóna samfélagi eða 80 milljóna samfélagi eins og Þýskalandi. Hins vegar væru þessar upplýsingar persónugreinanlegar í litlu samfélagi þannig að við ættum raunverulega að vera með miklu strangari löggjöf hvað þetta varðar, en það er ekki atriðið. Atriðið er að við erum að lögfesta og innleiða reglugerð um ópersónulegar upplýsingar. Því er breytt í frumvarpinu í ópersónugreinanleg gögn. Það er allt annar hlutur, miklu minna mengi. Ópersónugreinanleg gögn eru hluti af ópersónulegum gögnum og það verður að hafa í huga.
Mig langar aðeins að vísa í það sem segir í greinargerðinni, með leyfi forseta:
„Áformað er að lögfesta reglugerðina í heild sinni skv. 2. gr. frumvarpsins.“ — Það er með tilvísunaraðferðinni. — „Þar sem um er að ræða nýja lagasetningu er sú leið farin að setja inn í frumvarpið efni nokkurra kjarnaákvæða reglugerðarinnar til þess að gera hana aðgengilega fyrir almenning …“ — vegna þess að reglugerðin sjálf gæti ekki verið aðgengileg fyrir almenning.
Áfram segir, með leyfi forseta:
„Leitast er við að fylgja orðalagi ákvæða reglugerðarinnar svo ekki komi upp misræmi. Ekki er gengið lengra en lágmarksákvæði reglugerðarinnar kveða á um. Frumvarpið hefur ekki að geyma frávik frá reglugerðinni …“
(Forseti hringir.) Það er nákvæmlega þetta misræmi sem við erum búin að tala um hér nánast allan tímann. (Forseti hringir.) Ég er búinn að gera það í tveimur ræðum.