154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[18:05]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég ætla nú ekki að vera með frekari málalengingar um þetta mál. Ég hef sagt nokkurn veginn það sem mér lá á hjarta varðandi þetta mál sem snerist kannski fyrst og fremst um að útskýra það fyrir áheyrendum í kjölfar þess að ég áttaði mig á því sjálf um hvað málið snerist. Það sem mig langar aðeins að tæpa á hérna og náði ekki að gera í minni síðustu ræðu tengist andsvari mínu til hv. þm. Eyjólfs Ármannssonar hér rétt áðan í tengslum við það að stjórnvöld séu kannski ekki alveg nógu vakandi gagnvart þeim breytingum sem við þurfum að gera á löggjöfinni vegna tækniframfara.

Mig langaði til að vekja athygli á frumvarpi sem við Píratar höfum lagt fram, sem er svo sem ekki beintengt þessu máli sem við erum að tala um hér. Það eru breytingar á höfundalögum sem við erum að leggja til og ég veit ekki betur en að það séu hreinlega fyrstu breytingarnar og einu sem hafa verið lagðar til hér á lögum til að svara þeirri þróun sem er að verða á gervigreind. Frumvarpið er ákaflega einfalt og ákaflega sjálfsagt. Þetta eru einfaldar tillögur og hið algera lágmark sem þarf að gera til að bregðast við gríðarlega hraðri þróun gervigreindar. Hvers vegna eru það breytingar á höfundalögum? Jú, það eina sem við erum að leggja til í því frumvarpi er að þegar efni eða eitthvað er unnið með gervigreind þá sé það merkt og sömuleiðis — og ég ætla að fá að lesa hérna upp úr frumvarpinu vegna þess að ég held að okkur hafi tekist ágætlega upp við að orða það á nokkuð skiljanlegu máli án þess að skola til merkingum eins og virðist hafa verið gert í frumvarpinu sem við erum hér að ræða — með leyfi forseta:

„Við 2. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Endurgerð af einstaklingi sem ætla má að sé raunveruleg, hvort sem um er að ræða mynd, myndband, hljóðupptöku eða annað efni, er óheimil án samþykkis viðkomandi einstaklings og afkomenda hans ef viðkomandi er látinn.“

Þetta hljómar ótrúlega sjálfsagt, held ég. Ég held að öllum þyki jafn sjálfsagt að það eigi að vera óheimilt að búa til endurgerð af einstaklingi án hans samþykkis. En það er ekkert í gildandi lögum sem tekur á þessu, bara ekki neitt, og það er kannski annað dæmi um að löggjöfin okkar og ekki síður stjórnvöld séu að sofna á verðinum eða með öðrum hætti ekki að svara örri tækniþróun. Þarna erum við að tala um eitthvað sem er svo algerlega sjálfsagt.

Ég ætla að lesa annað ákvæði hérna sem mig langar til að vekja athygli á í þessari umræðu vegna þess að við erum að innleiða Evrópulöggjöf sem er fyrir löngu komin. Við erum langt á eftir í rauninni, eins og hefur komið hérna fram. En í þessu frumvarpi sem ég er að tala um hérna, sem við Píratar höfum lagt fram til að bregðast við tækniþróun, þá segir m.a. í 2. gr., með leyfi forseta:

„Á eftir 10. gr. a laganna kemur ný grein, 10. gr. b, svohljóðandi: Auðkenna skal allar endurgerðir sem falla undir 6. mgr. 2. gr. með þeirri aðferð sem var notuð til þess að búa til endurgerðina. Með endurgerð sem fellur undir 6. mgr. 2. gr. skal tilvísun í upprunalegt verk ávallt fylgja birtingu á endurgerðinni.“

Þarna erum við að leggja til að í lög verði fest akkúrat það sem er svo sjálfsagt og ég nefndi hérna rétt áðan; að þegar um er að ræða endurgerð sem er sköpuð af gervigreind þá sé það merkt og komi fram. Ég held að þetta sé annað dæmi um eitthvað sem við getum öll verið sammála um og erum öll sammála um. Vitanlega er þetta mál stopp einhvers staðar í nefnd því að þrátt fyrir ítrekaða beiðni nefndarmanna og okkar framsögumanna þessara mála í fastanefndum þingsins þá starfar þessi meiri hluti með þeim hætti að það er ekki borin meiri virðing fyrir þingskapalögum en svo að mál eru ekki tekin á dagskrá þrátt fyrir ósk framsögumanns þar að lútandi. Samkvæmt ákvæðum þingskapalaga á að taka mál á dagskrá ef framsögumaður óskar eftir því (Forseti hringir.) þannig að ég ætla bara að leyfa mér að hvetja hv. meiri hluta þessa þings (Forseti hringir.) til að fara að endurlesa þingskapalögin og kannski fylgja þeim (Forseti hringir.) í fundarstjórn sinni í fastanefndum Alþingis.

(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmanninn á að ræðutíminn var liðinn.)