154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[18:10]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína og verð að segja eins og er að þetta eru mjög áhugaverðar tillögur til breytingar á höfundalögum sem hún og flokkur hennar, Píratar, hafa komið með sem viðbrögð við þróun gervigreindar og um að merkja að afurð sé unnin með gervigreind. Þetta er mjög mikilvægt að komi fram. Ég get tekið dæmi sem tengist þessu svolítið en ég tel jafnvel að stjórnvöld ættu að merkja ópersónuleg gögn. Það liggur ekki alltaf fyrir að þetta séu ópersónuleg gögn en þá myndu stjórnvöld vita það og gætu t.d. geymt þau erlendis sem er miklu ódýrara, til að mynda Þjóðskjalasafnið og Vegagerðin, jafnvel heilbrigðisstofnanir og aðrar stofnanir, Skipulagsstofnun o.s.frv. Það er svo hins vegar gerð krafa í 6. gr. frumvarpsins um að birta rafrænt upplýsingar um allar kröfur um staðsetningu gagna.

Varðandi gervigreindina og höfundaréttarlög minnti ræða hv. þingmanns mig á það að ég hitti tölvumann frá Kaliforníu í fyrra á ferðalagi um Ísland og ég spurði hann um höfundaréttarmál í Bandaríkjunum sem lúta að gervigreindinni, vegna þess að gervigreindin byggir á upplýsingum sem eru til staðar og sem fólk hefur búið til. Það er mál í gangi þar núna um þetta svokallaða „input“ eða efnivið gervigreindarinnar, hver eigi höfundaréttinn að því. Hann taldi að þau mál myndu tapast m.a. vegna þess að þá myndu þeir missa forskotið á Kína og líka vegna þess að þetta væru opinber gögn. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort það væri ekki rétt jafnvel að koma með breytingu á höfundaréttarlögum á Íslandi til að tryggja að ef það á að fara að nota íslenskar upplýsingar, íslenskar bókmenntir t.d. og annað sem íslenskir höfundar hafa gert, sem grunnvið eða efnivið í gervigreind verði þess getið í gervigreindinni og jafnvel greitt fyrir. Þetta er mjög áleitin spurning, veit ég, (Forseti hringir.) en þetta er grundvallarspurning sem Evrópusambandið þarf að svara og það er ekki ólíklegt að þeir fari aðra leið í framtíðinni heldur en Bandaríkin munu gera þó svo að dómsmálin séu óviss þar.