frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þarna komum við einmitt að mikilvægri tengingu við það mál sem við erum að ræða hér, sem er nokkuð sem ég held að fólk hafi kannski áttað sig á tiltölulega nýlega varðandi gervigreindina en er sem betur fer sífellt að komast betur inn í umræðuna og í meðvitund fólks, og það er hvernig hún er mötuð; hvaðan koma upplýsingarnar sem gervigreindin notar? Þetta er auðvitað lykilatriði við notkun gervigreindar og gerir það að verkum að það er í rauninni alltaf þessi mannlega aðkoma að hönnun hennar sem ræður útkomunni.
Ég velti fyrir mér í kjölfar andsvars hv. þingmanns og þess að umræðan er komin út á þessa braut hvort þetta mál sem við erum að ræða hér, þetta frumvarp og þessi reglugerð Evrópusambandsins, hafi áhrif á þau gögn sem eru notuð til að fóðra gervigreind. Það er gríðarlega mikið af spurningum sem er ósvarað enn þá varðandi löggjöfina, varðandi höfundarétt, bara eins og þessi ákvæði sem ég nefndi sem við Píratar höfum lagt til í sjálfstæðu frumvarpi sem eru svo einföld og sjálfstæð og mikið grunnatriði að það ætti auðvitað fyrir löngu að vera búið að sjá þetta fyrir og klára það. Það sem við erum að sjá þar eru bara breytingar á höfundalögum en það er ýmislegt annað og það sem hv. þingmaður var að tala um snertir líka á höfundalögum. En svo kemur akkúrat að þessu: Við erum að tala hérna um ópersónuleg gögn, ópersónugreinanleg gögn, og við erum að tala um frjálst flæði gagna á milli ríkja. Það er gríðarlega mikilvægt að það flæði sé ekki takmarkað af einhverjum ástæðum sem eru ekki rökréttar eða málefnalegar, sem er svo sem verið að reyna að koma í veg fyrir með þessu máli hér. En akkúrat, þarna erum við á eftir. (Forseti hringir.)
Mig langar kannski svolítið að skjóta spurningu til baka til hv. þingmanns varðandi gervigreindina: Ætlum við (Forseti hringir.) að sýna frumkvæði og bregðast við tækninni eða ætlum við alltaf að bíða eftir því (Forseti hringir.) að einhver úti í heimi hafi vit fyrir okkur?