frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur fyrir seinna andsvarið. Varðandi spurninguna í lokin þá virðist það ætla að vera þannig, alla vega hérna á Íslandi, að við ætlum að bíða eftir því sem gerist erlendis og sjá hvernig þetta þróast allt saman og svo munum við sennilega fá reglur sendar frá Brussel sem við munum innleiða með tilvísunaraðferðinni. Það er a.m.k. það sem við erum að gera varðandi upplýsingabyltinguna og gögn sem eru ekki persónuleg, ópersónuleg gögn. Það virðist vera að við ætlum ekki að reyna að vera á undan bylgjunni og reyna að móta okkar eigin stefnu í þessum málum heldur munu þær reglur koma erlendis frá. Það er mín skoðun á því og það tel ég ekki vera nægilega gott. Ég held reyndar að þegar við tölum um ópersónulegar upplýsingar þá hafi það mengi minnkað gríðarlega mikið vegna gervigreindar. Ég held líka að ef við skoðum enn þá minna mengi sem eru ópersónugreinanlegar upplýsingar, ópersónugreinanleg gögn, þá muni verða auðveldara að persónugreina eða tengja persónur við ópersónugreinanleg gögn. Það á við hvað sem er, t.d. ef við erum með teikningar á vegum eða húsum og svoleiðis og kannski vitum ekki hver arkitektinn er þá verður alltaf hægt að tengja þær við persónur á endanum, hvernig sem það verður. Gervigreindin myndi kannski koma með lista, ef Þjóðskrá væri „input“ þar, um það hverjir tengdust þessum vegi eða þessum hlut sem er ekki persónugreinanlegur. Það mengi á eftir að minnka vegna þess að það eina sem þarf að gera er að tengja einhverja persónu við gögn. Það er það sem er málið. Ég er ekki að tala hér um viðkvæmar heilbrigðisupplýsingar eða neitt svoleiðis, en það á eftir að verða algjör bylting varðandi gervigreind og það að staðsetja einstaklinga. Og það sem er afurðin í upplýsingabyltingunni eða varan, það eru einstaklingarnir. Þegar við erum á Facebook, Google og á samskiptamiðlum þá eru þessi fyrirtæki — meira að segja (Forseti hringir.) Windows 10 var ókeypis vegna þess að fyrirtækin eru að afla upplýsinga um okkur sem þau geta selt annað til að nýta í markaðssetningu til okkar.