154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[18:18]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Við erum svolítið komin út um víðan völl í þessari umræðu en hins vegar þá hefur þessi greinarmunur á ópersónugreinanlegum gögnum og persónugreinanlegum komið mjög oft upp t.d. í mínu starfi. Nú hef ég sem lögmaður í mínum fyrri störfum unnið mikið með viðkvæmar persónuupplýsingar einstaklinga sem koma oft fram í dómum og úrskurðum dómstóla og opinberra stjórnvalda og þá ætti fræðilega séð að duga að afmá upplýsingar eins og nafn og annað slíkt, persónulegar upplýsingar, en það þýðir ekki að aðrar upplýsingar sem koma fram séu ekki persónugreinanlegar. Þetta hefur verið snúið í framkvæmd og t.d. komu upp álitamál í úrskurðum kærunefndar útlendingamála fyrir nokkrum árum um hvort það að tilgreina upprunaríki einstaklinga séu of persónulegar upplýsingar til þess að þær séu tilgreindar í úrskurðum. Kærunefndin komst á einhverjum tímapunkti að þeirri niðurstöðu að svo væri og tók út upprunaríki, jafnvel í málum fólks frá ríkjum þar sem var talsverður fjöldi umsækjenda. Þetta gerði birtingu úrskurðanna minna gagnlega þar sem það er vitanlega lykilatriði í niðurstöðum stjórnvalda þegar kemur að t.d. umsókn um alþjóðlega vernd hvaðan einstaklingur er að koma. Sem betur fer hefur þessu verið breytt og þessi misskilningur leiðréttur, eða það sem ég álít misskilning. Nú eru lögfræðingar sem komust að þeirri niðurstöðu þarna að þetta væru persónugreinanlegar upplýsingar en ég var því alltaf ósammála og þessu hefur verið breytt. Þetta er kannski útúrdúr en er held ég ágætisdæmi um það hversu snúið það getur verið að túlka þessi hugtök.