innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Nú fjöllum við um annað mjög tæknilegt frumvarp með enn flóknara nafni en frumvarpið sem við vorum að ræða hér á undan. Það er um dreifða færsluskrártækni. Við stöndum á ákveðnum tímamótum í fjármálaheiminum þar sem ný tækni eins og dreifð færsluskrártækni og bálkakeðjur er að breyta leikreglunum. Mig langar þess vegna að ræða hvernig þessi tækni er að móta framtíð fjármála og hvaða áhrif hún hefur á það hvernig við hugsum um peninga, eignir og jafnvel persónuvernd.
Dreifð færsluskrártækni er þýðing á enska hugtakinu „distributed ledger technology“, þ.e. haldið er utan um skrár á dreifðan máta. Þessi tækni er byltingarkennd vegna þess hve örugg hún er sem miðill upplýsinga. Hún leyfir upplýsingum að vera vistaðar á mörgum ólíkum stöðum án þess að ein miðlæg eining haldi utan um heildargagnagrunninn. Tæknin tryggir að hver færsla, hvort sem það er peningamillifærsla, samningsundirritun eða eignarskráning, er skráð á öruggan og óumbreytanlegan hátt á fjölmargar tölvur eða nóður í netinu. Þetta þýðir að ekki er hægt að breyta eða eyða upplýsingum án þess að hafa samþykki meiri hluta þátttakenda í þessu neti, sem gerir ferlið mjög öruggt og gegnsætt. Þessi eiginleiki er kjarninn í því sem við köllum bálkakeðjur eða á ensku, með leyfi forseta, „blockchain“, en sú tækni er best þekkt fyrir að vera undirstaða rafmynta eins og Bitcoin.
Við getum reynt að hugsa bálkakeðju sem bók — þaðan kemur orðið á ensku, „ledger“, en það er það sem við venjulega færum bókhald í — sem heldur utan um allar færslur eða viðskipti í hvert skipti sem ný færsla er skráð í hverja blokk, sem við getum hugsað um sem síðu í bók. Þegar búið er að fylla síðuna eða blokkina af færslum er hún læst og tengd við fyrri blokkina í keðjunni. Sú síða er tengd við síðuna á undan á þann máta að ef ég myndi reyna að breyta einhverju á þessum síðum þá rofnar tengingin. Með því að tengja við fyrri blokk í keðjunni þá myndast þessi keðja, bálkakeðja eða „blockchain“. Hver blokk inniheldur upplýsingar um allar færslurnar sem eru í þeirri blokk eða á þeirri síðu, ásamt því að sett er tímasetning og sérstakur útreiknaður kóði tengir hana við blokkina á undan. Þessi tenging tryggir að ef einhver reynir að breyta færslu í einni blokk þarf viðkomandi ekki bara að breyta þeirri blokk heldur öllum blokkum þar á eftir. Þetta gerir tæknina mjög örugga gegn svikum þar sem breytingar á færslunum myndu krefjast samþykkis meiri hluta allra þeirra sem geyma gögnin í keðjunni. Það geta oft verið þúsundir tölva, þúsundir aðila. Yfir 500 aðilar þyrftu því að segja: Já, það má breyta þessari færslu. Það sem raunverulega gerist er að þegar þú ert búinn að skrá einhverja færslu þá er hún orðin föst og ekki er hægt að breyta henni. Þetta skiptir rosalega miklu máli vegna þess að tæknin getur veitt öruggt og gegnsætt umhverfi fyrir fjölmargar tegundir viðskipta og upplýsingaskráninga án þess að þurfa að treysta á einhvern einn miðlægan aðila. Þetta opnar nýja möguleika í fjármálageiranum og í öðrum greinum.
Ein fyrsta tæknin eða útfærslan á þessari tækni voru rafmyntir. Rafmyntir eru ekki tengdar við einhvern ákveðinn seðlabanka eins og myntirnar sem við erum vön heldur hefur enginn stjórn á því hvernig þær virka, nema að skilgreint er ákveðið ferli hvernig þær verða til. Rafmyntirnar eru byggðar á þessari bálkakeðjutækni og með þeim höfum við séð glitta í framtíð þar sem peningar eru ekki lengur bundnir við miðstýrðar stofnanir eins og seðlabanka, eða banka yfir höfuð. Þess í stað getum við átt og flutt verðmæti á milli landamæra án milligöngu og án verulegs kostnaðar. Þetta opnar einmitt nýja möguleika fyrir millifærslur, fjármögnun verkefna og fjárfestingar án þess að þurfa að treysta á hefðbundnar fjármálastofnanir. En ávinningurinn af þessari tækni nær langt út fyrir rafmyntir. Í fjármálageiranum erum við farin að sjá hvernig þessi tækni getur breytt öllu frá tryggingum til eignastýringar. Með því að nota dreifðar færsluskrár geta tryggingafélög dregið úr svikum og bætt skilvirkni. Þá getur eignastýring orðið mun aðgengilegri og gegnsærri fyrir fjárfesta á öllum stigum.
Við verðum þó að vera vakandi fyrir áskorunum sem fylgja þessari nýju tækni. Persónuvernd, regluverk og stöðugleiki fjármálakerfa er á meðal þeirra viðfangsefna sem við þurfum að takast á við. Við Píratar leggjum mikla áherslu á gagnsæi og persónuvernd sem einmitt er verið að gera og takast á við með því að setja löggjöf um notkun á þessari tækni. Við þurfum að tryggja að innleiðing á dreifðri færsluskrártækni í fjármálageiranum fari fram á hátt sem verndi rétt einstaklinga og stuðli að jöfnuði. Með samþykkt þessara laga skapast hér á landi tækifæri til að taka þátt í nýsköpun á þessu sviði án þess að fórna öryggi og stöðugleika.
Við Íslendingar komum hins vegar dálítið seint að borðinu þegar kemur að því að innleiða lög tengd þessari tækni. Í því sambandi ættum við að horfa til Eistlands en þar hefur þingið innleitt nýtt hugtak sem það kallar tilraunalög eða á ensku, með leyfi forseta, „beta law“, en það er hluti af stefnu Eistlands í að styðja við nýsköpun í landinu. Tilraunalög eru lagaákvæði sem eru í gildi til bráðabirgða til að prófa nýjar hugmyndir og nálganir í raunverulegu umhverfi áður en endanleg ákvörðun er tekin um það hvort þau verði að stöðluðum heildarlögum. Hugmyndin á bak við tilraunalög er að veita ríkinu og fyrirtækjum sveigjanleika til að prófa lausnir sem gætu verið of áhættusamar eða nýstárlegar til að falla að hefðbundnum reglum. Þetta er sérstaklega mikilvægt í hröðum tæknigeira þar sem lagaumhverfi getur oft hamlað frekari þróun vegna þess hve tímafrekt og flókið það getur verið að breyta lögum.
Eistland, sem oft hefur verið kallað eitt framfarasinnaðasta ríki heims í stafrænni tækni, hefur nýtt tilraunalög til að styðja við þróun og innleiðingu nýrrar tækni á borð við gervigreind, bálkakeðjur og rafmyntir. Með tilraunalögum sem sett voru fyrir þó nokkrum árum í Eistlandi hvað varðar þessa ákveðnu tækni gat Eistland hratt og auðveldlega prófað nýjar hugmyndir án þess að binda þær endilega við lög sem gætu úrelst hratt í síbreytilegu tækniumhverfi. Í fjármálageiranum hafa tilraunalög í Eistlandi t.d. veitt fyrirtækjum möguleika á að þróa og prófa nýjar greiðslulausnir og fjármálavörur sem byggjast á bálkakeðjutækni án þess að vera bundin ströngum fjármálaeftirlitslögum sem gætu hamlað nýsköpun. Þetta hefur opnað dyr fyrir nýjar aðferðir við peningaflutninga, fjárfestingar og eignastýringu sem eru skilvirkari, ódýrari og aðgengilegri, svo ekki sé talað um gagnsærri fyrir almenning. Þetta hefur ekki aðeins bætt tækni- og fjármálaumhverfi landsins heldur einnig styrkt stöðu þess sem leiðandi miðstöð fyrir alþjóðlega fjárfestingu og nýsköpun.
Í heimi þar sem tækniþróun er hraðari en nokkru sinni fyrr sýnir dæmi Eistlands mikilvægi þess að þing veiti sveigjanleika og stuðning við nýsköpun í gegnum sveigjanleg lög og reglugerðir. Það sýnir einnig mikilvægi þess að ríkisstjórnir séu tilbúnar að endurskoða og aðlaga löggjöf til að mæta þörfum samtímans og framtíðarinnar. Ef við fylgjum fordæmi Eistlands og höfum það að leiðarljósi þá getum við hjálpað til við að móta tilraunir á þessu sviði sem styðja við sjálfbæra þróun og nýtingu á dreifðri færsluskrártækni. Hana er hægt að nota í allt mögulegt í fjármálageiranum, allt frá grænum skuldabréfum til sjálfbærni í fjárfestingum sem getur haft varanleg jákvæð áhrif á fjármálakerfið og samfélagið í heild sinni.
Með því að byrja að hugsa innan þessara veggja aðeins öðruvísi um það hvernig við horfum á lagasetningu og hvernig við vinnum með nýsköpun að því að búa til regluverk og lagaumhverfi fyrir nýja tækni, ekki sex árum eftir að Evrópusambandið gerir það heldur áður en Evrópusambandið gerir það og meðan Evrópusambandið gerir það, og aðlögum síðan lagaumhverfið að því sem endanlega verður samþykkt innan Evrópusambandsins, þá sköpum við tækifæri fyrir Ísland til að verða sá staður sem fyrirtæki leita til sem vilja fara í nýsköpun á sviði tækninnar. Saman getum við því mótað framtíð þar sem tækni og gildi fara hönd í hönd, þar sem hver og einn hefur jafnt tækifæri til að nýta sér krafta tækninnar til að skapa betri framtíð fyrir sig og aðra.