154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[18:35]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir frábæra ræðu. Það fer nú að rjúka upp úr hausnum á manni þegar maður hlustar á alla þessa visku. Ég vildi spyrja hv. þingmann út í atriði sem tengist þessu máli, þó kannski ekki alveg með beinum hætti. Ég vildi nefnilega spyrja út í rafmyntir. Nú byggja rafmyntir á svokallaðri dreifðri færsluskrártækni. Telur hv. þingmaður að rafmyntir geti nýst almenningi til að stunda viðskipti í framtíðinni? Telur hv. þingmaður að rafmyntir séu nógu einföld vara til að almenningur geti tileinkað sér hana til daglegra nota? Eða eru rafmyntir of áhættusamar og flóknar til þess að hægt sé að mæla með því í komandi framtíð að almenningur hætti notkun hefðbundinna gjaldmiðla og fari að nota rafmyntir í daglegum viðskiptum? Hann talar um að Eistland sé komið langt á veg, en hvar erum við stödd? Erum við í fornöld í þessu samhengi? Erum við að missa af lestinni? Erum við farin að nota þessa tækni? Ég hjó t.d. eftir því að hann talaði um að tryggingafélögin gætu nýtt sér þetta til að koma í veg fyrir svik og ýmis málefni.

Ég spyr mig líka: Þetta er hálfgert bókhaldskerfi, virðist vera, debet/kredit. Ég lærði það og þar gat maður alltaf strokað út og byrjað upp á nýtt ef maður gerði einhver mistök, en eftir því sem mér skilst á hv. þingmanni erum við að tala um að það þurfi allt að 500 aðila eða eitthvað ef maður gerir einhver mistök þarna. Ég er bara að spá í hvernig þetta virkar. Hann sagði að það væri ekki hægt að breyta en ef það eru gerð mistök, verða mistökin þá alltaf óbreytanleg?