innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Fyrst varðandi rafmyntirnar. Upphaflega rafmyntin sem var búin til var Bitcoin og hún hefur einmitt verið lituð af því að vera svolítil, hvað á ég að segja, spákaupmennska. Það sem er hins vegar að gerast er að seðlabankar víða um heim eru farnir að skoða það að gefa út rafmyntir sem eru í raun bundnar beint við þessa venjulegu mynt sem við notum í dag. Ef maður hugsar út í það, ef við hugsum bara aftur til þess tíma þegar ég og hv. þingmaður vorum að alast upp þá vorum við bara með seðla og mynt í höndunum. Það voru ekki einhver kort. Það var ekki hægt að fara með símann bara upp að einhverju tæki og borga. Við erum í rauninni komin með hálfgerða rafræna útgáfu af mynt en það sem bætist við með þessari tækni er að það er hægt að gera svo margt. Það er hægt að setja t.d. inn í bálkakeðjuna: Ef ég fæ þessi gögn frá hv. þingmanni mánudaginn 3. september þá sjálfkrafa sendist þessi peningur á hann. Það er hægt að setja svona reglur inn í keðjuna sem gerir það að verkum að hægt er að skilgreina tryggingar, eignasamninga og alls konar svona hluti mun betur.
Varðandi seinni hluta spurningar hv. þingmanns um það að leiðrétta þá er eitt að geta farið inn í bókhaldskerfið og breytt upphæðum bara af því að þú settir inn vitleysu. Það er hins vegar kennt í bókhaldsfræðum að þú átt að laga það með því að setja inn tvær nýjar færslur þar sem þú lagar mistökin úr gömlum. Og það er nákvæmlega það sem bálkakeðjan krefst þess að þú gerir; að gömlu mistökin sjáist enn þá en líka leiðrétting.