154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[18:40]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ég get ekki annað en verið innilega sammála honum. En eins og þegar hann var að tala um reiðuféð okkar í gamla daga þá var enn einn viðskiptahátturinn og það voru vöruskipti. Þú fórst í kaupfélagið með rollurnar og lagðir þær inn. Síðan veit ég um bændur sem komu og ætluðu að fara að taka út pening og þá voru þeir bara spurðir: Til hvers? Hvað ætlar þú að gera við hann? Geturðu ekki bara tekið út hjá okkur í vörum í staðinn? Þannig að það eru ýmsar útgáfur sem hægt er að leika sér með í svona kerfi.

Ég skil það og ég myndi segja fyrir mitt leyti að maður óttast alltaf svona kerfi og eins og við vitum með Bitcoin þá einhvern veginn týndist það og menn eru að grafa eftir því. Og þá spyr maður: Bíddu, hvernig er hægt að týna þessu og af hverju þurfum við að grafa eftir því? Hvers lags kerfi er það sem er virkar þannig?