innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Varðandi þetta með kaupfélagið þá er það einmitt eitt af því sem er grunnurinn í þessari tækni að það er enginn miðlægur aðili í kerfinu sem gerir það að verkum að það getur enginn orðið að kaupfélaginu eða seðlabankanum.
En varðandi seinni spurninguna um hvernig maður týnir Bitcoin og hvað það sé að grafa eftir Bitcoin þá er það að grafa eftir Bitcoin, eins og það er kallað, í rauninni það að búnar voru til ákveðnar reglur um það hvernig rafmyntin er búin til, hvernig hver og ein blokk í þessu kerfi er búin til og það er þessi meinti gröftur; allir eru að búa til nýja mynt. Hvernig týnir þú myntinni? Jú, einhvers staðar verður þú að geyma þá mynt sem þú átt og það er gert í rafrænu veski. Ef þú týnir lyklinum, dulmálskóðanum að veskinu þínu þá týnir þú myntinni. (Forseti hringir.) Ég þekki nokkra sem hafa tapað því sem væru í dag nokkrar milljónir dollara bara af því að þeir týndu dulmálslyklinum.