innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Þó svo að við séum hér að setja lög um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni þá er það einmitt alls ekki þannig að bara fjármálamarkaðurinn geti nýtt þetta. Mig langar að gefa hv. þingmanni dæmi úr mínu fyrra starfi. Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna ákvað að gera prufu á því að nota þessa tækni fyrir flóttamenn frá Sýrlandi. Það sem þeir voru að gera var að venjulega fengu flóttamenn frá Sýrlandi í flóttamannabúðum úthlutað ákveðið miklum pening og ákveðið miklum hjálpargögnum í hverjum mánuði. Gallinn var sá að til þess að geta látið þá fá pening þurftu þeir kort og fengu bara kreditkort eða debetkort eins og við þekkjum. Vandamálið var hins vegar að debetkortafærsluhirðarnir, og við erum að tala um færsluhirða hér á eftir, tóku ákveðna prósentu sem kostaði heilmikið. Matvælastofnunin vildi því finna út úr því hvernig þeir gætu gert þetta og nýtt á máta sem gerði það að verkum að menn myndu lækka kostnaðinn en auka gagnsæið í því hvernig þetta væri notað. Þetta virkar því þannig í dag að hver og einn flóttamaður skannar í sér augun til að sýna hver hann er í búðinni og þar sést bara hvað hann mikið inni á sínu stafræna veski og hann notar það til að borga. Það góða var að þarna fengu búðirnar sem þeir voru að versla við peninga strax að kvöldi frá matvælastofnuninni í stað þess að þurfa að bíða í mánuð eftir því að færsluhirðarnir hjá kreditkortafyrirtækjum tækju við sér og borguðu. Þetta gekk mjög vel (Forseti hringir.) og er verið að fara að nýta á öðrum stöðum.