innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir gott og fróðlegt svar við spurningu minni. Mér dettur strax í hug t.d. Rússland en eftir hrun múrsins og ólgutímann á tíunda áratugnum var það oft þannig þar að menn voru bara teknir út af hlutafélagaskrá. Það áttu kannski fimm einstaklingar fyrirtæki og tveir voru afmáðar þannig að þrír áttu fyrirtækið eftir það. Það var gert með því að múta hlutafélagaskránni og breyta skráningunni. Þetta væri ekki hægt í dreifðri færsluskrá, það væri mjög erfitt, og þetta er alveg rakið að gera í löndum þar sem mikil spilling er. Mér finnst að það mætti horfa til breiðara samhengis, t.d. til hlutafélagaskrár og annarra skráa sem lúta ekki að fjármálagerningum. Ég held t.d. að við munum í framtíðinni eiga bílaviðskipti í dreifðri færsluskrá sem væri með þeim hætti að við þyrftum ekki að fara til Samgöngustofu til að skrá breytingu á bílaeiganda. (Forseti hringir.) Mig langar að heyra nánar um það hvort þetta sé (Forseti hringir.) löggjöf sem mætti fræðilega nota líka með öðrum hætti þar sem þetta er regluumhverfi (Forseti hringir.) sem er raunverulega tilbúið.
(Forseti (ÁsF): Ég áminni þingmanninum um að ræðutíminn er ein mínúta í seinni umferð.)