154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[18:49]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að gefa annað dæmi um hvernig er hægt að nota þetta sem er ekki tengt beint fjármálageiranum. Það er verið að byrja að nýta þessa tækni í mörgum þróunarlöndum til að halda utan um það hver á hvaða land. (EÁ: Nákvæmlega.) Í mörgum af þessum löndum eru landspildurnar sem fólk á ekkert mjög stórar og þar af leiðandi mikið af fólki sem á mikið af löndum. Þegar kemur að spillingu þá var einmitt mjög auðvelt að banka bara upp á hjá fasteignaskránni á því svæði og svo taka yfir lönd sem voru þegar í eigu fólks. Með því að nýta þessa tækni er hægt að halda utan um það hver á hvað og það stendur og er gagnsætt og ekki hægt að breyta nema með því að skrá þær breytingar og þá hvernig borgað var fyrir viðkomandi hlut inn í skránna.