154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[18:50]
Horfa

Katrín Sif Árnadóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég verð að viðurkenna að þetta frumvarp er fyrir mér ákveðinn frumskógur og ég vona að hv. þm. Gísli Rafn geti hjálpað mér að glöggva mig betur á innihaldi þess. Ein formleg spurning, kannski áður en ég sný mér að efninu. Það vekur athygli mína að þetta frumvarp er lagt fram af þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, en er síðan flutt í 1. umræðu af núverandi fjármála- og efnahagsráðherra, hæstv. Sigurði Inga Jóhannssyni. Mér skilst að við ráðherraskiptin hafi þingmenn t.d. þurft að skrá að nýju fyrirspurnir til nýs fjármálaráðherra formsins vegna en svo virðist sem ráðherrann hafi ekki þurft að leggja fram að nýju frumvörpin sín. Ég vildi því spyrja hv. þingmann hvort hann geti útskýrt fyrir mér hvers vegna það verða skráningarhnökrar við stólaskiptin í tilviki fyrirspurna en ekki í tilviki frumvarpa.

Ég sný mér svo að þeirri spurningu sem ég vildi bera undir þingmanninn um efni frumvarpsins í mínu síðara andsvari.