154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[18:51]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já hv. þingmaður kemur með áhugaverða spurningu: Af hverju geta ráðherrar lagt fram frumvörp og þurfa ekki að endurflytja þau á meðan við þurfum að endurflytja okkar spurningar? Kannski er spurningin: Af hverju er það ekki þannig þegar við leggjum eitthvað fram eða gerum eitthvað hér að það fer inn í bálkakeðju einhvers staðar hjá þinginu? Þar með er það gagnsætt og sést að þetta hafi verið lagt fram og týnist ekki þegar viðkomandi ráðherra ákveður allt í einu að skipta um stóla. Það er kannski góð spurning af hverju við erum ekki með það uppsett þannig. En þetta snertir einmitt marga hluti sem eru í því hvernig við störfum hér innan þingsins, fyrirspurnir nefnilega deyja líka. Ef ég sendi inn fyrirspurn núna og hæstv. ráðherra er ekki dugleg eða duglegur að svara og ekki er komið fram svona um miðjan ágúst þegar þingið fer í svokallaða vefútbýtingu þá hreinlega mun ég ekki fá neitt svar. Það var einn hæstv. ráðherra í fyrra sem ákvað t.d. að það væri ekkert gott að svara einhverjum erfiðum spurningum frá mér þannig að viðkomandi lét þær bara daga uppi. Þetta er eitthvað sem virðulegur forseti gæti kannski skoðað: Af hverju breytum við ekki aðeins þingskapalögum ef þess þarf til þess að tryggja að við séum ekki að búa til óþarfa vinnu oft og mörgum sinnum í hvert skipti sem skipt er um ráðherra? Vegna þess að það virðist vera orðin ansi mikil tíska nú til dags.