154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[18:54]
Horfa

Katrín Sif Árnadóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans andsvar. Það er ávallt gott að fá leiðsögn um þingstörfin frá reyndari þingmönnum og ég mun að sjálfsögðu nýta mér þetta sem veganesti inn í framtíðina. En nú að efni fyrirspurnar minnar í seinna andsvari: Telur hv. þm. Gísli Rafn að það séu starfandi fyrirtæki á Íslandi í dag jafnvel með tilbúnar vörur sem hægt verði að koma á markað á grundvelli þess tilraunaregluverks sem við ræðum nú og telur hv. þingmaður að Ísland geti e.t.v. tileinkað sér þessa dreifðu færsluskrártækni, jafvel á vegum hins opinbera og jafnvel orðið leiðandi á heimsvísu á þessu sviði tækniþróunar?