154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[18:55]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Já, ég veit að það eru fyrirtæki sem hafa í þó nokkur ár verið að þróa tækni á þessu sviði. Þau hafa verið að gera mjög áhugaverða hluti og sumt af því á heimsmælikvarða, myndi ég segja, og það að við fáum núna lagarammann hér á landi mun þýða að það verður auðveldara fyrir þau fyrirtæki að byrja að bjóða upp á þessa tækni hér. Ég nefndi áðan að seðlabankar væru farnir að skoða það að gefa út rafmyntir tengdar mynt landanna og ég veit að það er eitt fyrirtæki t.d. sem hefur verið að þróa slíkar lausnir fyrir Seðlabankann. Ég held að það sé fullt af svona tækni sem er verið að skoða eða hefur þegar verið byrjað á.