innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég get svo sem alveg sagt það hér að það er hárrétt sem hefur komið fram í umræðum um þetta mál að stundum erum við að fást við í lagasetningunni mjög flókin og tæknileg mál og leiðir af eðli þeirra að það er auðvitað þannig að þingmenn og þingflokkar og örugglega ráðherrar og vafalítið sérfræðingar innan ráðuneyta þurfa stundum að reiða sig á sérþekkingu og leita aðstoðar. Það er bara partur af því sem við erum að gera hér alla daga.
Það sem ég ætlaði að gera í þessu andsvari er ekki beint að ræða um efnisatriði frumvarpsins, ég ætla mögulega að gera það frekar í ræðu á eftir. Það sem mig langaði hins vegar að spyrja um er það sem hefur komið hér fram, að þetta mál er lagt fram af einum ráðherra og svo er það annars ráðherra að fylgja því eftir vegna stólaskipta innan ríkisstjórnarinnar. Þetta er búið að vera ákveðin mantra á þessu kjörtímabili, stef sem við þekkjum allt of vel, að það eru ör stólaskipti á milli ráðherra. Auðvitað er ekkert skrýtið við það að stundum komi eitthvað upp á kjörtímabili og ráðherrar færist á milli stóla en það hefur endurtekið gerst hjá þessari ríkisstjórn vegna þess að það hefur verið vandræðagangur í stjórnarsamstarfinu sem svo ofan á allt kemur upp úr því að einhverju leyti að það urðu miklar tilfærslur á milli málaflokka og flokka þegar þessi ríkisstjórn var mynduð, eins og við þekkjum mætavel. Mig langaði bara að spyrja hv. þingmann, af því að hann býr yfir talsverðri þingreynslu og hefur verið hér að fylgjast með þingstörfunum a a.m.k. lengur heldur en ég, hvort þessi staðreynd, þessi öru mannaskipti í ráðuneytum, þessi mikla tilfærsla sem varð við myndun (Forseti hringir.) þessarar ríkisstjórnar, fjölgun ráðuneyta og þar fram eftir götunum, sé ekki raunverulega að hafa áhrif á gæði þeirra mála sem við erum að fást við í þingsalnum, mögulega fresta málum (Forseti hringir.) og hafa þar af leiðandi bein áhrif á hag almennings með þeim hætti.