innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir andsvarið og get ekki annað en verið honum innilega sammála, þetta er alveg með ólíkindum. Nú er ég búinn að vera hérna á sjöunda ár á þingi og á þessu tímabili hef ég lagt nokkur mál fram sjö sinnum. Ég meina, spáið í þetta, ef við bara hugsum þetta sem vinnu: Ég er að grafa 10 metra skurð og ég klára að grafa þennan 10 metra skurð en ég þarf aftur að grafa 10 metra skurð við hliðina á honum og ég þarf að gera það sjö sinnum. En það þurfti bara einn skurð. Ég átti bara að gera þetta einu sinni, þetta átti bara að vera einu sinni og vera þarna inni. Ég á ekkert að þurfa að grafa aftur eða koma með sama málið aftur og aftur, ár eftir ár. En svo verða ráðherraskipti. Ráðherra kemur inn, fjármálaráðherra í þessu tilfelli, flytur málið, vonandi setur sig inn í málið og allt saman og flytur það. Svo bara fer hann úr ráðuneytinu og þá kemur næsti ráðherra. Ætti hann þá ekki að fara nákvæmlega sömu leið, byrja á því að flytja málið frá upphafi, kynna sér málið, fara í gegnum það, tala um það og vita hvað hann er að tala um? Nei, hann bara hendir þessu inn og sést ekki. Horfum á þetta út frá því sjónarhorni að ég hef ekki orðið var við nokkurn stjórnarþingmann vera að ræða þetta mál. Ég veit ekki hvort þið hafi orðið vör við það. Ekki nema þegar málið var flutt á sínum tíma, annars hefur maður eiginlega ekki orðið var við einn eða neinn. Það er eins og þeim sé bara alveg sama, þetta sé bara eitthvert ESB-mál sem eigi að renna í gegn án umræðu, (Forseti hringir.) án þess að það séu nokkuð kannaðar mögulegar afleiðingar eða um hvað er fjallað.