innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta og get alveg tekið undir að það er auðvitað bagalegt að stjórnarþingmenn sjái sér ekki fært að taka þátt í þessari umræðu. Það er þó vissulega huggun að maður tekur eftir því að forseti Alþingis fylgist hér með af athygli þegar verið er að ræða um þessi mál.
Það sem ég ætlaði að nefna kemur í framhaldi af ræðu hv. þingmanns, sem snerist að hluta til um að við erum að taka í gegnum EES-samstarfið á móti lögum og reglum frá Evrópusambandinu. Við erum stundum að innleiða hér hluti á færibandi, er sagt, og við þurfum að vera meira vakandi í því að vakta málin, fara betur í gegnum þau og annað og til þess erum við jú að vinna hér. Maður veltir því hins vegar fyrir sér hvort þetta kalli á einhvers konar umræðu um meiri sérfræðiaðstoð við þingflokkana og þingmenn þegar kemur að þessum málum. Auðvitað er það þannig að stjórnarflokkarnir búa að því að þeir stýra ráðuneytum þar sem er mikil sérfræðiþekking inni og eiga þar af leiðandi kannski greiðara aðgengi að alls konar upplýsingum og öðru slíku, þótt vissulega séu mörg tæki og tól fyrir okkur þingmenn til að nálgast það með einhverjum hætti. En ég hreinlega velti því fyrir mér hvort við séum í einhverri annarri stöðu gagnvart þeirri löggjöf sem við tökum á móti að utan heldur en mörgu af því sem kemur hér úr stjórnsýslunni í tíð þessarar ríkisstjórnar og margra sem á undan komu. Auðvitað er það almennt þannig að við þurfum að setja okkur inn í mál alveg óháð því hvaðan þau koma þannig að ég velti því fyrir mér hvort það sem á bak við þetta er hjá hv. þingmanni sé ekki frekar að honum sé meira í nöp við Evrópusambandið og það sé það sem stýri því sem hann er að segja, frekar en að það sé einhver stórfelld hætta á því að hér eigi sér stað einhver meiri slys í þessum innleiðingum en gengur og gerist í þeim lögum sem við erum að taka við og afgreiða frá þeim ríkisstjórnum sem sitja hvert sinn.