154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[19:18]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Nei, nei, þetta sem ég var að tala um áðan hefur í sjálfu sér ekkert að gera með Evrópusambandið heldur hefur komið í ljós að bæði þetta mál og síðasta mál sem við erum að ræða hérna eru mjög tæknilega flókin mál. Þetta er nýjasta tækni í tölvumálum og ég efast um að stór hluti af þingmönnunum 63 séu það færir í þessum málum. Ég veit um einn hérna sem veit töluvert um þetta en ég veit ekki um marga fleiri sem geta sett sig nákvæmlega inn í þetta mál. Þess vegna er svo ofboðslega mikilvægt þegar um svona flókin tölvumál er að ræða, og þarna koma fullt af nýyrðum sem eru ekkert almennt á borði hér inni í þingsal, þá finnst mér sjálfsagt að það sé kynnt almennilega og okkur sé leiðbeint að mörgu leyti. En sem betur fer er þessi umræða að upplýsa okkur um hluti sem við hefðum sennilega aldrei uppgötvað ef við hefðum ekki tekið þátt í henni. En ég spái þá í stjórnarþingmenn, sem eru ekki hérna: Hvaða upplýsingar hafa þeir? Þeir eiga eftir að koma hingað inn og greiða atkvæði um þetta og samþykkja þetta. En ég spyr mig: Vita þeir hvað þeir eru að samþykkja? Hafa þeir þekkingu á þessari tækni og hafa þeir kynnt sér nákvæmlega og til hlítar um hvað þessi mál fjalla? Ég verð bara að segja alveg eins og er að ég efast um það.