innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Hv. þingmaður nefndi einmitt rafmyntir hér á undan og ég held að eitt af því sem hafi að vissu leyti eyðilagt aðeins fyrir þessari tækni sé það hversu mikið hefur verið rætt um rafmyntir og hvað þær sveiflast og ýmislegt annað. Mig langar að gefa hv. þingmanni annað dæmi sem gæti verið svolítið áhugaverðara. Nú vitum við það að í mörgum kerfum sem ríkið er með þá er það þannig að ef þú uppfyllir einhver skilyrði færðu t.d. einhverjar bætur. En stundum er það þannig hjá ríkinu að þú þarft að berjast fyrir því að fá þessar bætur, þú þarft jafnvel að sækja um þær. Það er hins vegar hægt að nota þessa dreifðu færsluskrártækni til að setja inn slíkar reglur, reglurnar um að ef þú uppfyllir þetta skilyrði þá eigir þú að fá þessa þjónustu eða þennan pening eða eitthvað slíkt, og ég nefndi þetta aðeins áðan þegar ég var að fjalla um þetta, og reglurnar eru þá þannig að þær eru fastar í keðjunni, í bálkakeðjunni, og þegar þær sjá að ákveðin skilyrði eru uppfyllt þá gerist eitthvað. Hv. þm. Eyjólfur Ármannsson nefndi dæmið áðan um að ef ég sel þér hús og þú borgar mér í fjórum greiðslum þá getum við sett inn þá reglu í bálkakeðjuna að þegar fjórða greiðslan kemur þá færist afsalið sjálfkrafa yfir. Þetta held ég að væri góð hugmynd fyrir ríkið að hugsa um. Nú erum við t.d. að endurskoða allt örorkukerfið og hvernig við ætlum að borga bætur þar og annað. Ímyndið ykkur ef það yrði allt saman keyrt áfram af sjálfkrafa reglum sem þýddi að þú þyrftir ekki að sækja um eitthvað ákveðið (Forseti hringir.) heldur bara um leið og þú uppfylltir ákveðin skilyrði þá léti kerfið þig sjálfkrafa fá peningana.