154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[19:23]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir þetta og get ekki annað en verið sammála. Hugsið ykkur það kerfi í almannatryggingakerfinu, í örorkukerfinu sem myndi þurrka út 80% af vitlausum greiðslum til fólks, af því að þeir kunna ekki að reikna verðbætur fram í tímann. Hugsið ykkur ruglið sem við erum búin að búa til. Ég hef oft verið að hugsa varðandi það að óttast gervigreindina að gervigreindinni myndi aldrei detta í hug að hafa svona vitleysu í farteskinu og þess vegna væri gjörsamlega óskandi að það væri hægt að gera þetta.

En mig langar að spyrja hv. þingmann út í það sem ég hef áhyggjur sem er að sú þróun sem hefur átt sér stað í þessari tækni kunni að hafa neikvæðar hliðarverkanir. Aukin fjártækni líkt og sú sem þetta frumvarp fjallar um hefur leitt til þess að fólk notar sífellt minna reiðufé sem er svo samtvinnað við flóknara regluverk eða aðgerðir gegn peningaþvætti eða eitthvað. Við vorum að tala um þetta gæti nýst t.d. seðlabankastjóra og að það væri mikið öryggisatriði fyrir þjóðina að hafa mögulega eitthvert reiðufé tengt við þetta. Er hann sammála mér að það sé afar mikilvægt að notkun reiðufjár leggist ekki af í náinni framtíð og t.d. að Ragnheiður og Brynjólfur verði áfram í veskinu og það verði hægt að stjórna þessu á einhvern hátt? Ég er að spá í hvernig við myndum stjórna því og hver áhættan væri í þeirri stjórnun.