innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Já, ímyndaðu þér að við værum með kerfi í almannatryggingunum sem væri eins og sænska kerfið: Þú átt rétt á þessu, viltu ekki fá það borgað? Nema við þurfum ekki að hafa einhvern Svía til að stýra því heldur getum við hreinlega notað bálkakeðjuna til þess.
Varðandi það hvort reiðufé sé orðið eitthvað sem við eigum að vera með þá er vandamálið við reiðufé að það leyfir okkur að gera alls konar hluti. Ef þú lætur mig fá 100.000 kr. í reiðufé ert þú kannski að múta mér og ég get labbað um með þennan 100.000 kall og eytt honum smátt og smátt þannig að enginn taki eftir því. Það sem þessi dreifða færsluskrártækni hefur umfram aðra tækni er að allt sem fer inn í skrána, allt sem fer inn í færsluskrána er opinbert. Þannig að ég sé að það var færður peningur frá hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni yfir á hv. þm. Gísla Rafn Ólafsson, það er hægt að sjá að það hafi gerst og hver upphæðin var. Þá getur einhver eins og skatteftirlit og aðrir komið og sagt: Af hverju var nú hv. þingmaður að borga hv. þingmanni? Við höfum kannski einhverja góða ástæðu til þess en hvað ef þetta hefðu verið einhverjir aðrir aðilar? Hluti af því sem tæknin leyfir okkur að gera er að vera með meiri rekjanleika og þó svo að margir hafi kannski reynt að nota þetta og séu að nota þetta til að fela peninga og annað þá hafa þeir meira verið að gera það þannig að þú lætur mig fá einhverja rafræna mynt og ég fer og læt einhver annan fá hana og svo enn annan. Merkilegt nokk er oft hægt að rekja þetta alla leið til baka en það er ekki hægt úr veskinu mínu, hversu marga Brynjólfi ég er með.