154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[19:27]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að annað í þessu dæmi sé líka það að maður stendur sjálfan sig að því að vera hættur að nota peninga yfirleitt, þetta er allt orðið rafrænt. Eins og staðan er í dag þá þarftu að borga fyrir það ef þú ferð í bankann og ætlar að taka út peninginn þinn. Ef þú ætlar að setja peninginn inn aftur þá þarftu líka að borga fyrir það. Ef þú ert með færslukort þá þarftu að borga fyrir það. Þú er að greiða alls staðar. Það er alls staðar verið taka af þér, plokka af þér peningana og sennilega gæti þetta, sýnist mér og kannski mun einhver leiðrétta mig, losað okkur við bankana sem milliliði sem eru alltaf að mergsjúga mann.

Ég verð svo að segja í lokin að ef þetta kerfi væri eins og í Svíþjóð, eins og hv. þingmaður sagði — það er ekki flókið þar; þú átt þennan rétt og færð borgað í almannatryggingakerfinu. Á Íslandi áttu þennan rétt og þú færð borgað en við tökum peningana svo af þér aftur ef þú hafðir ekki vit á því að vera snillingur í verðbólgu og í að reikna allt rétt. Eða þá að þú fékkst frá lífeyrissjóði og gast ekki haft það á hreinu hvað þú myndir fá mikið frá lífeyrissjóðunum. Þú vissir hversu mikið þú fengir í upphafi árs en þú áttir að vita það líka í upphafi árs hvað þú fengir mikið í lok ársins. Það segir sig sjálft að lífeyrissjóðurinn sjálfur veit það ekki einu sinni þannig að það er enginn sem veit það en það er samt gerð sú krafa á aldrað fólk, veikt fólk, fatlað fólk að það hafi þessa þekkingu. Það segir mér, ef þetta er svona, að við þurfum einhverja gervigreind til að taka það í burtu.