innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Við ræðum frumvarp fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Frumvarp þetta er innleiðingarmál þar sem verið er að lögfesta ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins um tilraunaregluverk fyrir innviði markaða sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni eða DFT. Málið sem hér er til umræðu er mál sem margir eiga kannski erfitt með að tileinka sér, enda væri ég ekkert hissa ef menn ypptu öxlum eða klóruðu sér í kollinum yfir að heyra jafn tæknilegt hugtak og dreifða færsluskrártækni. Dreifð færsluskrártækni er í rauninni stafrænt kerfi til að halda skrá yfir upplýsingar með endurtekinni afritun þessara upplýsinga sem eru skráðar á ólíkum stöðum. Ólíkt því sem þekkist í hefðbundnum gagnasöfnum hafa dreifðar færsluskrár enga miðlæga geymslu gagna eða miðlæga stjórnunarvirkni. Dreifð færsluskrártækni vísar því beinlínis til tæknilegra innviða og regluverks sem gerir samtímaaðgengi, staðfestingu og uppfærslu skráa mögulega á tölvuneti sem dreifist á mismunandi aðila eða staðsetningar og oft er þá átt við fullgildingarhnúta þegar rætt er um ólíka aðila.
En hvert er notagildi slíks kerfis? Dreifð færsluskrártækni gefur notendum kerfisins vald yfir öllum upplýsingum og viðskiptaferlum með gagnsæjum hætti, eyðir mótaðilahættu og getur haft verulega hagræðingu í för með sér hvað varðar þann tíma sem viðskipti taka. Dreifð færsluskrá getur bæði verið með eða án heimildar en þá er átt við hverjir þátttakenda geta gegnt hlutverki fullgildingarhnúts en í kerfi án heimildar er það sem sagt í hlutarins eðli að hvaða þátttakandi sem er geti talist slíkur hnútur og er þá talað um skrá án heimildar.
Ein tegund dreifðrar færsluskrár er bálkakeðja eða „blockchain“, með leyfi forseta, en þar eru færslur dulmálsritaðar inn á skrár sem skipulagðar eru í bálka sem mynda keðju þar sem hver nýr bálkur tengist fyrri bálk með dulmálslykli að lokinni staðfestingu sem þarf að vera samhljóða. Hver af þessum nýju bálkum er svo afritaður á öll afrit bálkakeðjunnar. Stuðningsmenn þessarar dreifðu kennsluskrár vísa til þess að ávinningur hennar sé þjónusta sem er aðgengileg allan sólarhringinn alla daga ársins en auk þess eigi hún að auka skilvirkni bakvinnslu, draga úr áhættu í greiðslumiðlun og stuðla almennt að aukinni sjálfvirkni. Á alþjóðlegum vettvangi hefur skapast nokkur umræða um stafrænar eignir, svo sem kryptóeignir, t.d. Bitcoin, og er dreifð færsluskrá einmitt grundvöllur í þessum svokölluðu rafmyntum eða sýndareignum, burt séð frá afstöðu fólks til þess hvort slíkar kryptóeignir geti talist vera peningur eða gjaldmiðill í þrengri merkingu eru ákveðnir hópar sem nota Bitcoin sem greiðslumiðil og verðmætageymi. Í júní 2021 ákvað ríkisstjórn El Salvador að gera Bitcoin að lögeyri í landinu ásamt bandaríkjadal en viðbrögðin hafa kannski verið dræm og er áætlað að u.þ.b. 60 milljónir bandaríkjadala hafi tapast vegna gengisfalls Bitcoin samkvæmt fréttum 2022.
En snúum okkur nú að kjarna málsins sem er frumvarp það sem er til umræðu hér. Eins og áður hefur komið fram felur lagasetningin í sér tilraunaumgjörð um útgáfu fjármálagerninga á grundvelli þessara dreifðu færsluskrártækni og sértækra leyfa til rekstrar innviða sem taka þá til viðskipta eða annast uppgjör slíkra viðskipta án þess að slegið sé af kröfum um vernd fjárfesta, fjármálastöðugleika og heilleika markaðarins, sbr. 1. gr. frumvarpsins. Markmið frumvarpsins er því að veita innlendum aðilum á fjármálamarkaði sömu tækifæri og bjóðast öðrum á Evrópska efnahagssvæðinu til nýbreytni og framþróunar á sviði viðskipta með fjármálagerninga á grundvelli dreifðrar færsluskrártækni og við uppgjör slíkra viðskipta.
Ég hef verið að fjalla um dreifðu færsluskrártæknina í nokkuð víðu samhengi og er því kannski ekki ljóst hver raunverulegi ábatinn gæti verið með nýtingu kerfisins á sviði stafrænnar fjármálaþjónustu hér á landi. Í skýrslu starfshóps um tækifæri og áhættur á sviði stafrænnar fjármálaþjónustu er talið að þau tækifæri sem DFT skapar sé fyrst og fremst tækifæri til nýsköpunar sem tengjast notkun stöðugleikamyntar, rafeyris eða seðlabankarafeyris en ekki ótryggðra kryptóeigna. Starfshópurinn taldi að þótt ótryggðar kryptóeignir séu einnig gæddar ýmsum eiginleikum DFT-tækninnar og margar nýjungar hafi raunar upphaflega verið bundnar við viðskipti með ótryggðar kryptóeignir innan kryptóvistkerfisins virðist ólíklegt að þær muni ná umtalsverðri útbreiðslu án milligöngu stöðugleikamyntar.
Greiðslumiðlun er ýmsum vandkvæðum bundin, hvort sem um er að ræða greiðslumiðlun innan lands, erlendis eða á milli landa eða lögsögu. Innlend greiðslumiðlun er að mörgu leyti háð erlendum aðilum og eignarhaldi. Árið 2018 gerði Seðlabankinn könnun sem leiddi í ljós töluvert hærri kostnað við innlenda greiðslumiðlun en á hinum Norðurlöndunum. Í Noregi og í Danmörku hefur tekist að ná niður kostnaði með því að byggja á beinum millifærslum milli reikninga, svokölluðum RíR lausnum eða reikning í reikning eða með innlendum debetkortalausnum sem eru óháðar erlendum kortaskimunum og þeirra innviðum við notkun innan lands. Í niðurstöðum stýrihópsins kemur fram að stöðugleikamyntir sem hafa rutt brautina á undanförnum árum, rafeyrir eða seðlabankarafeyrir, gætu í framtíðinni auðveldað aðgengi fyrirtækja og almennings að fjármálaþjónustu, lækkað kostnað og bætt öryggi.
Samkvæmt þessu frumvarpi verður þegar starfandi aðilum á fjármálamarkaði, nánar tiltekið verðbréfafyrirtækjum, rekstraraðilum markaða og verðbréfamiðstöðvum kleift að kanna nýtingarmöguleika og að innleiða dreifða færsluskrártækni í starfsemi sinni. Gert er ráð fyrir því að þó séu ekki einungis aðilar sem fyrir eru á markaði heldur einnig nýir sem geti starfrækt þessa innviði svo lengi sem þeir hafi sérstakt leyfi og nýti í starfseminni umrædda tækni. Eins og kemur skýrlega fram er hér um tilraunaverkefni að ræða enda er með hinni evrópsku reglugerð, DFTR, veitt víðara svigrúm til nýsköpunarverkefna á sviði fjármálaþjónustu miðað við gildandi regluverk. Þessi leyfi á grundvelli frumvarpsins munu gilda á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Það eru þó atriði sem koma til skoðunar varðandi það hvort stöðugleikamyntir og aðrar stafrænar eignir geti raskað fjármálastöðugleika. Það er þó áhyggjuefni að takist fáeinum stöðugleikamyntum að ná umtalsverðri markaðshlutdeild á sviði alþjóðlegrar greiðslumiðlunar gæti það haft veruleg áhrif á fjármálastöðugleika.
Í kynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins kemur fram að það telur DFT-reglugerðina ekki fjalla um dreifða fjármálaþjónustu heldur notkun dreifðrar færsluskrártækni, enda sé það útgangspunktur regluverks á sviði verðbréfamarkaðsréttar að gera kröfur til miðlægra aðila, þ.e. útgefenda, verðbréfafyrirtækja, rekstraraðila markaða og verðbréfamiðstöðva um skipulag, stjórnun og lágmarks eigið fé og fleira í því skyni að vernda hagsmuni viðskiptavina, fjármálastöðugleika og heilleika markaðarins. Ráðuneytið telur að DFT-reglugerðin og því frumvarpið sjálft muni því ekki hagga þessu fyrirkomulagi. Það er einmitt eitthvað sem ég velti fyrir mér í þessu máli enda ef tilgangur dreifðrar færsluskrártækni er miðstýring verður þá ekki lögfesting reglna um leyfisveitingar og fleira til aðila með svo ströngum skilyrðum til þess fallið að draga úr nýsköpun á þessu sviði? Eru stóru aðilarnir að fara inn á markaðinn skilyrt og á grundvelli lagasetningar? Gott og vel. Eins og í öðrum innleiðingarmálum er hér reynt að jafna stöðu íslenskra fyrirtækja og stuðla að því að samevrópskt regluverk mæti kröfum framtíðar.
Það er áhugavert að síðan áform um lagasetningu voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 31. október 2023 hefur ekki ein einasta umsögn borist, hvorki þar né hjá Alþingi þegar málið var skráð í mars, að undanskildri knappri kynningu, fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Umfjöllun nefndarinnar er sömuleiðis álíka knöpp. Hinn fyrrgreindri starfshópur taldi í skýrslu sinni að tækni sem byggist á dreifðri færsluskrá gæti leitt til umtalsverðra framfara á sviði greiðslumiðlunar, annarrar fjármálaþjónustu og opinberrar þjónustu. Talið er að tæknin búi yfir eiginleikum sem gætu lækkað kostnað, bætt skilvirkni, aukið öryggi í viðskiptum og opnað dyr fyrir fjölda einstaklinga, einkum í fátækum löndum sem hafa hingað til verið útilokaðir frá fjármálaþjónustu og þar með fullri þátttöku í samfélaginu. Það er ljóst að án viðeigandi regluverks og eftirlits er hins vegar hætt við að áhætta sem fylgir þessari nýju tækni geti leitt til óstöðugleika og misnotkunar sem yfirgnæfi ávinninginn. Það er vert að hafa þetta í huga í framvindu málsins.