innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Hér er um mjög áhugavert mál að ræða, frumvarp til laga um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni. Það fyrsta sem manni dettur í hug er: Hvað þýðir dreifð færsluskrártækni? Jú, hér erum við að tala um það sem heitir á ensku „distributed ledger“ sem er dreifð færsluskrá en dreifð færsluskrá er grundvallaratriði í blokkarkeðju eða „blockchain“ sem er raunverulega það sem Bitcoin byggist á. Sagan á bak við dreifða færsluskrá er ekki ný. Margir held ég halda að þetta sé svo rosalega nýtt allt saman og þetta sé það allra nýjasta sem til er, en svo er ekki, eins og með margt sem tengist internetinu, eins og t.d. ský. Að setja eitthvað upp í ský, hvað er það? Það var markaðshugmynd að tala um ský en þar er einfaldlega bara verið að vista hluti í gagnageymslu sem er einhvers staðar í heiminum, t.d. eru margar á Írlandi, í Danmörku er nokkuð um þær og á fleiri stöðum. Þetta er vistað á stað sem þú hefur aðgang að í gegnum tölvuna heima í gegnum internetið.
Ég kynnti mér aðeins söguna um dreifða færsluskrá á sínum tíma. Margir vilja meina að þetta sé alveg frá Rómverjum eða jafnvel Býzans, þegar herfylkingar voru svo dreifðar og það þurfti að koma sömu skilaboðum til þeirra allra, nákvæmlega sömu skilaboðum þannig að þær vissu nákvæmlega hvað þær ættu að gera. Ég heyrði líka þá sögu að þetta væri upprunnið frá bandaríska hernum eins og internetið og svo margt annað, þá sérstaklega í Víetnamstríðinu vegna þess að þeir voru með njósnagögn á mörgum stöðum, kort o.fl., þannig að ef ein stöð væri sprengd upp þá væru gögnin enn þá til á hinum stöðunum. Dreifð færsluskrá er einfaldlega skrá eða fjöldi skráa sem eru með nákvæmlega sömu gögn en þeim er bara dreift víða.
Ég ætla kannski fyrst að tala um Satoshi Nakamoto sem skrifaði grein árið 2007 eða 2008, held ég, um Bitcoin og að við ættum að koma á fót svokallaðri rafmynt sem byggði á blokkarkeðju sem er dreifð færsluskrá, dreifð bókhaldsskrá öllu heldur. Hann skrifaði grein um þetta og svo lét hann skrá heimasíðuna Bitcoin.org. Þannig varð til Bitcoin sem er núna frægasta rafmynt sögunnar, frægasta rafmynt heims. Hann Nakamoto karlinn, það veit reyndar enginn hver þetta er eða hvort þetta sé maður eða kona eða kvár eða hvað, þetta er bara nafn sem er tekið upp, kannski er hann japanskur, kannski ekki, en hvað um það, hann var óánægður með fjármálakerfið, að menn töldu, þess vegna skrifaði hann um þetta. Hann sagði að Bitcoin kæmi í veg fyrir það að við þyrftum að treysta á þriðja aðila, „trusted third party“, sem er hinn trausti þriðji aðili. Það er t.d. banki, bifreiðaskrá, hlutafélagaskrá sem er allt í eigu opinbers aðila. Hann vildi meina að við þyrftum ekki á þessum öðrum aðilum að halda heldur gætum við átt viðskipti okkar á milli með rafmyntum án þess að þær væru útgefnar af stjórnvöldum. Það væri bara spurning um það hverjir vildu taka á móti Bitcoin sem gjaldmiðli og hverjir ekki.
Gjaldmiðill er hins vegar oft lögeyrir í löndum, sá gjaldmiðill sem þú getur borgað skatta með. Mér skilst, eins og kom fram í ágætri ræðu hv. þm. Katrínar Sifjar Árnadóttur hér áðan, að El Salvador sé eina ríkið í heiminum sem er búið að lögfesta Bitcoin sem lögeyri þannig að þú getur borgað skatta með Bitcoin. Það er til alveg mýgrútur af þessum rafmyntum og við gætum þess vegna stofnað hér „Alþingi-coin“, stofnað heimasíðu „Alþingi-coin“ sem við myndum nota til að borga t.d. í mötuneytinu eða á kaffistofunni og það geta allir gert þetta. Það er mikil samkeppni um þetta, alveg eins og var í Bandaríkjunum á 19. öld þegar margir bankar, mýgrútur af bönkum, gáfu út sína eigin mynt en á endanum var endað með svokallaðan „greenback“, sem var grænn á bakhliðinni og það er bandaríkjadollari í dag. Ríki eru þegar farin að gefa út sínar eigin rafmyntir, t.d. Svíþjóð, og ég er alveg handviss um það að þetta mun enda með því að íslenska krónan verði sennilega skráð sem rafmynt. Kínverjar eru komnir mjög langt í þessu en Svíar eru sennilega komnir allra lengst, þ.e. þeir gefa út rafmynt sem er skráð í dreifðri færsluskrá sem er hægt að nota.
Svo ég snúi mér aftur að Satoshi Nakamoto þá sagðist hann ætla að gefa út ákveðið magn af Bitcoin og auka það síðan með tíð og tíma en hann er núna talinn eiga um 70 milljarða bandaríkjadollara sjálfur, hver sem það er hins vegar. En þetta er raunverulega bara alger spákaupmennskumarkaður, innra verðið á seðlum og innra verðið á Bitcoin er ekkert. Þið getið tekið 500 kall og athugað hvort það sé eitthvert verð inn í pappírnum, það er ekkert, þetta byggist á trausti. Hjá okkur byggist það á trausti á Seðlabanka Íslands og við getum eiginlega metið traust á íslenskum stjórnvöldum frá því að við byrjuðum að gefa út íslensku krónuna, í gengisfalli hennar, frá því að við aftengdum íslensku krónuna frá dönsku krónunni. Þar getum við séð hvert traustið á íslenskum stjórnvöldum er eða a.m.k. þeim pappír sem við köllum íslensku krónuna, hvernig það hefur hríðfallið. Það er ekki eingöngu á grundvelli traustsins heldur hafa stjórnvöld líka verið að vinna í því að fella verðgildi hennar kerfisbundið, fella gengið kerfisbundið, sérstaklega fyrr á tíðum.
Dreifð færsluskrá er mjög áhugavert svið, við getum t.d. sett bifreiðaskrá þangað. Þá þurfum við ekki að fara til opinberra aðila og skrá bílaviðskipti. Við getum skráð viðskiptasamninga þannig. Ef ég myndi kaupa bíl í gegnum dreifða færsluskrá þá myndi, við síðustu greiðslu mína, skráningin og eignarhaldið færast af seljanda til mín, á mitt nafn, án þess að ég þyrfti að fara til bifreiðaskrár hjá Samgöngustofu og umskrá bifreiðina þar. Þetta er líka hægt að nota í fasteignaviðskiptum. Fasteignaviðskiptin myndu eiga sér stað án þess að opinber aðili kæmi að málum. Fasteignin myndi sjálfkrafa færast á mig í hinni dreifðu færsluskrá við greiðslu mína til seljanda. Þetta má líka nota í hlutafélagaskrá þar sem skráningin, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, á stjórnarmönnum t.d. og hlutabréfum myndi verða í hinni dreifðu færsluskrá en ekki í hlutafélagaskrá sem ríkið rekur. Þetta er sérstaklega mikilvægt þar sem er mikil spilling. Við þurfum þá ekki á hinu miðlæga trausti að halda, sem eru opinberir aðilar. Þetta er sérstaklega mikilvægt í ríkjum þar sem mikil spilling er, t.d. í Afríku, við skráningu jarða og annað slíkt. Ég vil vekja athygli á því að t.d. á tíunda áratug síðustu aldar í Rússlandi þá var verið að eiga við hlutafélagaskrár eins og enginn væri morgundagurinn. Það var verið að afskrá eigendur fyrirtækja og og taka stjórnarmenn út úr hlutafélagaskránni og eyða eignarhaldi einstaklinga á hlutafé. Þetta er gríðarlega mikilvægt en það felst líka í þessu hálfgert anarkí. Tryggingafélög hafa t.d. farið að skrá demanta, eins og Lloyd's tryggingafélagið, það er farið að skrá demanta sem það tryggir og mörg fyrirtæki eru að prófa sig áfram í þessu.
Hérna er Evrópusambandið komið með reglugerð um tilraunaregluverk fyrir innviði markaða sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni. Þessi færsluskrártækni er gríðarlega mikilvæg. Við munum í framtíðinni sennilega sjá einhverja mynd af því og ég tel að Ísland gæti vel farið að prófa sig áfram, t.d. með bifreiðaskrá í dreifðri færsluskrá, byrja þar, fikra sig síðan áfram með önnur verkefni með dreifðri færsluskrártækni. En til þess þurfum við nýsköpunarfyrirtæki til að hanna t.d. bifreiðaskrá með þessari dreifðu færsluskrártækni og til þess þarf líka tilraunaregluverk sem er reynt að koma á með þessu frumvarpi eða þessari reglugerð Evrópusambandsins sem við erum að innleiða hér, þessu sameiginlega tilraunaregluverki vegna markaðsinnviða sem byggjast á umræddri tækni. Til slíkra markaðsinnviða teljast markaðstorg fjármálagerninga, uppgjörskerfi og kerfi sem gegna hlutverki bæði viðskipta- og uppgjörskerfa sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni þannig að það er auðvelt að gera uppgjör. Þegar þú selur bifreið eða greiðir fyrir hlutabréf og annað slíkt þá uppfærast allar skrárnar, allar hinar dreifðu skrár. Það er ekki bara á einum stað sem uppfærist heldur dreifist það á allar skrárnar. Það er gríðarlega mikil raforka sem þarf í þetta ef mörgum færsluskrám er dreift og þar gæti Ísland verið ríki með hlutfallslega yfirburði með ódýrt rafmagn sem gæti þá sinnt þessari tækni.
Dreifð færsluskrártækni er talin munu geta sameinað viðskipti og eftirviðskipti sem til þessa hafa verið aðskildar tegundir fjármálaþjónustu og -starfsemi. Þá yrði uppgjörið gert allt á sama tíma, á sama tíma og þú greiðir þá er yfirfærslan tilbúin. Markmið þessarar reglugerðar, og þessa frumvarps, er ekki síst að fylla upp í tómarúm í gildandi samevrópsku regluverki. Með henni er tekið af skarið um forsendur nýsköpunarverkefna sem víða um heim hefur verið kallað eftir svigrúmi til að þróa áfram og kunna að leiða til breytinga á sérhæfðu sviði fjármálamarkaðar. Óvissa um hvaða reglur gildi, eða muni gilda í framtíðinni, getur verið nýsköpun og tækniframförum til trafala. Á sameiginlegum innri markaði fjármálaþjónustu er jafnframt rétt að huga að markmiðum um samhæfingu þvert á landamæri.
Hérna er klassísk löggjöf sem lýtur að tækniþróun, við ætlum að búa til tilraunaregluverk sem er fyrir innri markað Evrópska efnahagssvæðisins. Þetta regluverk er hluti af stafrænum fjármálapakka Evrópusambandsins, sem er síðan hluti af stafræna innri markaðnum sem Evrópusambandið er að reyna að koma á laggirnar. Það var eitt af forgangsverkefnum framkvæmdastjóra ESB, síðasta framkvæmdastjóra, herra Juncker frá Lúxemborg, um að koma á hinum stafræna innri markaði. Persónuverndarlöggjöfin er þar ein af meginstoðunum og líka almenna persónuverndarreglugerðin og einnig reglugerðin um ópersónugreinanlegar upplýsingar sem við vorum að fjalla um innleiðingu á hér áðan. Hér er hins vegar komið að nýsköpunarverkefni, þessu sameiginlega tilraunaregluverki sem ætti að gera það kleift að nýsköpunarfyrirtæki gætu farið að þróa dreifða færsluskrártækni á hinum ýmsu sviðum.
Ég vil vekja athygli á því að mér finnst það svolítið sorglegt og leitt að engar umsagnir hafa borist frá Samtökum atvinnulífsins eða frá Samtökum iðnaðarins og ég held að það séu til samtök sem heita samtök fyrirtækja í nýsköpunartækni. Þau hafa ekki komið með umsögn um þetta mikilvæga frumvarp á þessu sviði sem hefði þá farið til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd. Það kann að vera að þetta frumvarp hafi ekki verið nægilega vel kynnt af fjármála- og efnahagsráðuneytinu en hér er klárlega tækni sem við eigum að taka vel eftir og vera með á nótunum ef við ætlum að vera fullgildir þátttakendur í upplýsingabyltingunni. Ég held að þetta muni að einhverju leyti breyta í grundvallaratriðum því sem lýtur að opinberri skráningu eigna, hvort sem kemur að bifreiðum, fasteignum, hlutafélagaskrá og það mun eyða henni jafnvel og það er að gerast núna. Við munum t.d. ræða hérna seinna í dag um greiðslumiðlun. Það verður þannig í framtíðinni að þegar við förum í Bónus þá millifærum við beint af bankareikningi okkar og yfir á bankareikning Bónus, það mun ekki þurfa að fara í gegnum Visa-kort eða annað greiðslufyrirtæki sem er úti í heimi til að peningagreiðslan geti farið frá okkur sem kaupendum til fyrirtækis sem er að selja vöruna. Það er gríðarlegt hagsmunamál þar undir. Mér skilst að það séu um 40–50 milljarðar sem fara úr landi á ári til þessara stóru greiðslukortafyrirtæki eins og Visa og Mastercard af því að við eigum ekki sjálf greiðslumiðlunarkerfi sem við getum notað og stuðst við. Danir hafa DK-kortin og hin Norðurlöndin hafa sambærilegt sem er þá til brúks innan lands. Ég bind miklar vonir við að það komi nýsköpunarfyrirtæki inn á þann markað. Það er gott dæmi um þær gríðarlegu breytingar sem eru að eiga sér stað í fjármálakerfinu með tækninni. Ég get sagt það að á sínum tíma eftir hrun voru bankar að fara á taugum yfir því að þeir gætu orðið næsta Kodak, fyrirtæki sem yrði óþarft. Það var vegna þess að það voru komnir lánaklúbbar í Bandaríkjunum þar sem fólk gat sett peningana sína saman og lánað úr, það var ekki þörf á því að fara í banka.
Hér er frumvarp sem ætti að vekja mikla athygli hjá öllum sem hafa áhuga á nýsköpun og ekki síst í fjármálakerfinu. En þetta er kerfi sem ætti líka heima á mörgum öðrum sviðum samfélagsins.