innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mér fannst mjög skemmtilegt að heyra hann fara yfir þá margvíslegu möguleika sem dreifð færslurskrártækni hefur í för með sér. Mig langaði að ræða við hann um einn möguleika sem ég heyrði hann ekki minnast á í sinni ræðu en sem er eftir sem áður bara angi af þeim þáttum sem hann minntist á sjálfur og snýr að mannréttindafrömuðum, ofsóttum mannréttindafrömuðum víðs vegar um heiminn sem lenda í því að yfirvöld í landinu þeirra eltast við þau út fyrir landamæri. Þau eru jafnvel að flýja land vegna ofsókna í sínu heimalandi og það sem ríkið sem þau eru að flýja frá gerir er að flagga þeim sem stuðningsmanni hryðjuverka eða hryðjuverkamanneskju eða þá að viðkomandi sé grunaður um hluti eins og peningaþvætti. Þeir nota til þessa alþjóðlegu kerfin sem ríki heims hafa aðgang að til að flagga ákveðnum einstaklingum o.s.frv. inni í kerfi allra annarra ríkja í þessu samstarfi. Það sem gerist þá er að bankareikningar þessa fólks eru frystir og þau geta ekki tekið á móti peningum, launum, geta ekki greitt peninga út og annað, og þessi tækni er í raun eina von þeirra til að geta lifað nokkurn veginn eðlilegu lífi og fengið fjármagn til þess í raun bara að reka sig og sitt líf, fara til læknis og annað, út af þessu stranga regluverki sem við erum komin með þegar kemur að fjármögnun hryðjuverka og peningaþvættisvörnum. Þetta er einn af þessum spennandi möguleikum (Forseti hringir.) sem fylgir þessari tækni og ég vildi bara benda hv. þingmanni á þetta og spyrja hann hvað honum fyndist um það.