154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[19:59]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið sem var mjög áhugavert og kom inn á flöt sem ég hafði sjálfur ekki pælt í þar sem verið er að misnota þetta kerfi raunverulega og verið að flagga þeim sem hættulegum einstaklingum, mannréttindafrömuðum og fólki sem segir sínar skoðanir við stjórnvöld. „Speak truth to power“ er það kallað á ensku, að segja sína meiningu við valdhafana, og þeim er þá flaggað sem hættulegum einstaklingum. Ég held að það sé sennilega verið að misnota þarna kerfi Interpol í sambandi við alþjóðlegar skuldbindingar gagnvart öllum aðildarríkjum Interpol um það að ef það kemur tilkynning frá ríkjum um að þessi einstaklingur sé hættulegur þá eru allir bankareikningar fyrstir. Þetta er gott dæmi um miðlæga valdið sem er hjá Interpol og er náttúrlega í öllu alþjóðakerfinu. Ég held að bitcoin sé þá góður vettvangur til að komast hjá þessu en bitcoin og þessar rafmyntir, sem eru mjög margar, ethereum og hvað þær heita allar, hafa t.d. verið vettvangur fyrir peningaþvætti og það er litið á það sem ákveðið vandamál. Ég hef ekki heyrt af þessu vandamáli áður en vissulega er það hárrétt að þetta er eini vettvangurinn, ef allir bankareikningar eru frystir er þetta eini aðgangurinn að fjármagni. Bitcoin er hins vegar ekkert samþykkt alls staðar. Fyrirtækin þurfa sjálf að samþykkja það, kaffihúsin þurfa sjálf að samþykkja það að við notum bitcoin sem gjaldeyri eða aðrar myntir. Þá er hins vegar spurning hvaða lögeyrir er í því landi en sum ríki, t.d. núna El Salvador, hafa samþykkt þetta sem lögeyri í viðskiptum, Argentína ætlar núna að tala um samkeppni gjaldmiðla, þannig að það er augljóst mál að þessi gjaldmiðill er kominn til að vera. En ég er alveg sannfærður um það að stjórnvöld munu taka yfir þennan gjaldmiðil, alveg eins og var með bandaríkjadollara á sínum tíma. Þetta mun verða (Forseti hringir.) íslenska rafmyntin og svo íslenska krónan og svo sænska krónan sem þegar er komin. En ég þakka kærlega fyrir þetta fína andsvar.