154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[20:02]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er kannski einmitt einna helst þetta, getan til að millifæra án aðkomu bankastofnana vegna þess að það sem gerist líka er að það er lokað á aðgang þinn að nokkurri greiðslumiðlun. Þú getur ekki einu sinni notað Western Union af því að það er búið að flagga þér þar. Þetta er ekki bara Interpol sem sannarlega, eins og hv. þingmaður benti á, hefur verið misnotað. Tökum Rússland sem dæmi, sem er margbúið að sýna fram á að hafi misnotað flöggunarkerfi Interpol til að hafa hendur í hári fólks sem þeim er í nöp við og hefur gert eitthvað og þá ekki eitthvað glæpsamlegt heldur einfaldlega lýst skoðunum sínum á stjórnvöldum þar. Bill Browder skrifaði t.d. eftirminnilega bók um akkúrat þetta og heitir hún, held ég, Red notice, eða Rautt flagg ef við getum þýtt það yfir á íslensku, með leyfi forseta. En það er þetta samstarf á milli fjármálaeftirlita úti um alla Evrópu og jafnvel úti um allan heim og þessar tilkynningar sem koma til banka sem gerir það að verkum að þeir, verandi varúðarmegin í öllum svona viðskiptum, sjá sér engan annan kost færan en að loka á bankareikninga fólks og meina því um bankaþjónustu. Þar sem það er ekki endilega viðtekinn réttur að hafa bankaþjónustu þá lenda þau í þessum vandræðum. Þess vegna gefur þessi tækni þeim ákveðna von og tækifæri til að hafa a.m.k. einhvern aðgang að fjármagni. Þetta er eitthvað sem mannréttindafrömuðir koma reglulega að máli við mig um í Evrópuráðinu í vinnu minni þar, benda mér á að það sé verið að misnota þessi fjármálakerfi í þeim tilgangi að gera þeim lífið ótrúlega erfitt og nánast óbærilegt í þeim löndum sem þau hafa ákveðið að setjast að í eftir að hafa flúið heimaland sitt. Það er auðvitað líka ákveðin svona ófrægingarherferð gagnvart fólki að flagga þeim sem meintum peningaþvættisaðilum eða hryðjuverkamönnum. En það er einmitt þetta vogarafl gildanna vegna þess að auðvitað viljum við koma í veg fyrir (Forseti hringir.) peningaþvætti en á sama tíma viljum við ekki að þær reglur og það regluverk bitni á þeim sem síst skyldi.