innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég held að þetta sé eins og með alla aðra nýja tækni sem felur í sér smá grundvallarbreytingu, eða ekki smáa heldur mikla grundvallarbreytingu. Hér erum við að tala um misnotkun ríkja sem eru einræðisríki eða alræðisríki sem eru að eltast við og gera þeim sem þeir telja hættulega einstaklinga lífið leitt og raunverulega ómögulegt að lifa. Í mörgum ríkjum eru lög eða ákvæði um rétt til bankareiknings og það á ekki að vera hægt að neita einstaklingum um bankareikning. En þarna er verið að nota alþjóðakerfið til þess að einstaklingar sem hafa verið að mótmæla stjórnvöldum, réttilega og á friðsamlegan hátt, geti ekki lifað. Ég tel að þetta sé eitthvað sem bankar á Vesturlöndum alla vegana ættu ekki að sætta sig við, þeir ættu ekki að sætta sig við það að tilkynningar í dag séu frá Rússlandi. Bankar á Vesturlöndum myndu t.d. aldrei hafa tekið þátt í að loka (Forseti hringir.) bankareikningi Navalnís heitins eða fleiri andófsmanna þaðan. Það væri alveg með hreinum ólíkindum.