innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Af hverju var farin tilvísunarleiðian en heildarpakkinn ekki tekinn? Ég held að það skýrist af því að hér eru einfaldlega svo margar reglugerðir undir og þetta er mjög flókið regluverk. Eins og segir í 2. gr. eru þetta ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins 2022/858 og svo eru líka aðrar reglugerðir taldar upp, breyting á þeim, og síðan eru enn aðrar reglur sem halda gildi sínu með þeirri aðlögun. Þetta er gríðarlega flókið regluverk að setja sig inn í og þar sem þetta er fyrir innviði markaða með fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni og þetta er einhvers konar tilraunaumgjörð sem er verið að búa til þá er sennilega litið svo á að þetta sé ekki beint fyrir almenning. Þetta er mjög sérhæfð löggjöf sem er ætluð fyrir nýsköpunarfyrirtæki svo að þau geti komið með nýjungar sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni fyrir fjármálagerninga. Ég tel hins vegar að við gætum notað þessa dreifðu færsluskrártækni fyrir aðra gerninga líka eins og ég talaði um og það er mjög mikilvægt. Það er mjög erfitt að gera athugasemd við þessa tilvísunaraðferð og ég held að kröftum íslenskrar stjórnsýslu sem færu í það að þýða þetta og setja inn í íslenska lagabálka væri kannski betur varið annars staðar, en ég tel að það ætti klárlega að gera þetta varðandi ópersónulegu upplýsingarnar til samræmis við persónuverndarupplýsingarnar.
Það sem mér finnst mjög áhugavert við þetta er að þessi reglugerð felur í sér tilraunaumgjörð, svokallað „pilot regime“ á ensku, en gildandi regluverk veitir takmarkað svigrúm til slíkra nýsköpunarverkefna á sviði fjármálaþjónustu. Ég verð að segja alveg eins og er að ef þig langar að fara í svona „pilot“-verkefni eða tilraunastarfsemi (Forseti hringir.) þá er íslenskt samfélag alveg frábær staður til að gera það. Þetta er lítið samfélag, lítið einangrað samfélag, (Forseti hringir.) 400.000 manns og besti staðurinn til að prófa þetta í raunveruleikanum, í raunsamfélagi.