154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[20:10]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Við erum hér að ræða þessi mikilvægu mál þótt komið sé fram á kvöld og ég játa að það væri freistandi að slást í hópinn með fólkinu sem dansar hérna fyrir utan. Hv. þingmaður kemur að því sem ég ætlaði að spyrja um í seinna andsvari mínu sem varðar það sem kemur fram í greinargerðinni, að með þessari reglugerð er komið á sameiginlegu svokölluðu tilraunaregluverki vegna markaðsinnviða sem byggjast á þessari tækni, DFT-markaðsinnviða. Þetta er sem sagt einhver samræmd umgjörð til reynslu og það kemur hérna fram að það sé óljóst hvort áhugi eða forsendur reynist til nýtingar þessarar tækni hér á landi í þessu samhengi. En þetta vekur athygli mína og greinilega hv. þingmanns sömuleiðis, þessi tilraunaumgjörð eða „pilot regime“ á ensku, vegna þess að gildandi regluverk veitir takmarkað svigrúm til nýsköpunarverkefna af þessu tagi. Mig langar til þess að spyrja hv. þingmann hvort hann telji (Forseti hringir.) æskilegt að gera einhvers konar svona tilraunalöggjöf, eitthvað slíkt. Þetta er eitthvað sem ég alla vega hef ekki séð mikið gert hér. Við setjum ýmis bráðabirgðaákvæði í lög og annað (Forseti hringir.) en einhvers konar tilraunaregluverk velti ég fyrir mér hvort sé skynsamleg aðferð.