154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[20:12]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Hér er um sameiginlegt tilraunaverkefni að ræða vegna markaðsinnviða sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni. Við erum að tala hérna um markaðstorg fjármálagerninga, uppgjörskerfi og kerfi sem gegna bæði viðskipta- og uppgjörskerfum. Ég tel að þetta eigi fullkomlega rétt á sér og ég var nú aðeins að vinna við þetta í stórum norrænum banka og það var á þessu sviði. Þá var það þannig að það var verið prófa vörur, tæknivörur, og kannski fengnir 100.000 Finnar, viðskiptamenn bankans sem gátu þá notað ákveðnar vörur og skoðað hvernig það kom út. Ég hefði haldið að það væri alveg rakið að prófa svona vörur í íslensku samfélagi; nýjungagjarnt samfélag, frekar grunnt, auðvelt að markaðssetja vöruna og það eru kröfuharðir viðskiptavinir hérna. Ef við innleiðum þessar reglur rétt og kynnum þær rétt (Forseti hringir.) væri mjög gott að koma hingað til Íslands og prófa þessa dreifðu færsluskrártækni. (Forseti hringir.) Það væru alveg ótrúlegir möguleikar fyrir jafn lítið samfélag en samt nútímalegt eins og Ísland.