154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[20:13]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar að eiga orðastað við hv. þingmann í ljósi þeirrar reynslu sem hann hefur af rannsókn efnahagsbrota vegna þess að sá vilji hjá yfirvöldum að koma einhverjum böndum á rafmyntakerfi heimsins stafar af því að glæpamenn hafa nýtt sér þau sem skjól fyrir sína starfsemi. Hér hafa verið nefndir hryðjuverkamenn og peningaþvættislið og allt hvað eina. Það er allt satt og rétt. En þá langar mig að spyrja hv. þingmann út í meðalhófið. Eins og fram kom í andsvari hv. þm. Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur þá er þetta líka tækni sem þjónar andófsmanninum í alræðisríkjum. Það þarf ekki bara að benda á fólk sem hefur að ósekju verið sett á einhvern svartan lista hjá Interpol. Segjum að þú tilheyrir stjórnarandstöðunni í Belarús og þá bara treystir þú því kannski ekki að setja þitt fé á reikninga hjá hefðbundnum bankastofnunum. Til þess að vera með þitt á þurru þá viltu kannski nýta þér hluti eins og rafmyntakerfi til þess að geta átt nafnlausar millifærslur. Það að koma böndum á rafmyntakerfi er nefnilega annar angi af baráttu sem hefur verið lengi í gangi í Evrópu gegn reiðufé, gegn því að fólk geti átt nafnlaus viðskipti bara með því að rétta fram eitthvað sem getur borið virði á milli fólks. Sú barátta kemur ekki bara niður á pólitísku andófsfólki heldur líka niður á fátæku fólki, fólki sem ekki getur átt í viðskiptum við banka bara sökum efnahagslegrar stöðu sinnar. Þarna togast ólíkir hagsmunir á. (Forseti hringir.)

Mig langar að heyra aðeins innsýn þingmannsins á meðalhófið sem við þurfum að finna þarna.