154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[20:16]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir mjög svo áhugaverða spurningu. Varðandi glæpamenn á netinu þá eru allir þessir stóru bankar og vonandi á Íslandi líka með deildir og nánast með hálfsmánaðarnámskeið í hverri viku um það nýjasta sem er að gerast í glæpum á netinu, „phishing“ og „smishing“, þá er verið í gegnum tölvupóstssamskipti eða SMS að reyna að svindla á fólki o.s.frv. Það eru alltaf nýjar leiðir til að svindla fólki á þar. En varðandi reiðufé þá er það miklu dýrara fyrir banka að höndla með reiðufé. Það er meira að segja orðið þannig að ef þú ferð t.d. í Forex eða Western Union þá taka þeir ekki við klinki, bara gleymdu því. Hér hafa bankar neitað því t.d. að skipta erlendri mynt, erlendum seðlum, sums staðar getur þú einungis skipt dollurum og evrum, skilst mér, þeir eru alltaf að minnka þetta. Það er hins vegar frelsi í reiðufénu. Það er það sem við verðum að standa fyrir. Ef ég fer inn í verslun og versla með kreditkorti, kaupi kannski pólitískt blað eða eitthvað svoleiðis þá veit bankinn það, þá veit kreditkortafyrirtækið hvað ég er að gera, búðin veit það líka. Ef ég fer hins vegar inn í verslun og kaupi pólitísk blað með reiðufé þá veit það enginn nema ég, jú, kannski konan á kassanum en hún er búin að gleyma því mínútu eftir að ég er búinn. Þannig að það er miklu meira persónufrelsi í því að nota reiðufé. Mér finnst efnahagsbrotafaktorinn ekkert vera að styðja það að hætta með reiðufé. Það er alls ekki það. Þetta snýst um kostnað bankanna. Þeir eru að knýja á um þetta af því að það er meiri kostnaður að höndla með það. Það verður að segjast eins og að bankar voru hérna áður með reiðufé og þessi stórkostlegi gróði bankanna verður að fara að skila sér til neytenda og það er ekki hægt að vera að minnka þjónustu og leyfa fólki ekki að vera með svört viðskipti eða hvernig viðskipti það hefur og stunda sín viðskipti með reiðufé ef það vill, með því frelsi, án þess að rafræna eftirlitssamfélagið sé að fylgjast með þér. Við verðum að standa vörð um það. (Forseti hringir.) Það má tala lengi um það hvernig þessi upplýsingabylting hefur snúist í höndunum á okkur og Kína er mjög gott dæmi um það.