innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að ramma inn hvernig frelsi fólks til að eiga viðskipti án þess að þau séu rakin af einhverjum þriðja aðila skiptir mjög miklu máli í samfélaginu, sérstaklega þegar stafræn tækni býður upp á miklu meiri samkeyrslu á alls konar upplýsingum og þar með er hægt að teikna upp skýrari mynd af öllu sem við gerum í okkar daglega lífi. Ég held nefnilega að þetta sé samstofna vandamál, sú þróun sem hefur verið gagnvart reiðufé og það tilraunaregluverk sem við ræðum hér í dag. Þess vegna held ég að það sé jákvætt að um er að ræða tilraunaregluverk en ekki endanlega útfærslu og vonandi að reynslan verði rýnd af mikilli alvöru árið 2026 þegar kemur að uppgjörstímabili í Brussel vegna þess að mér finnst ekkert sjálfgefið að það séu sett of föst bönd á rafeyri, alveg eins og mér finnst ekkert sjálfgefið (Forseti hringir.) að reiðufé sé fasað út, hvort sem það er vegna hægðarauka fyrir bankana eða til þess að tryggja að það sé miðstýrð yfirsýn yfir það hvað fólk er að kaupa sér.