154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[20:21]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða dreifða færsluskrártækni sem getur haft ótrúlega jákvæðar og byltingarkenndar afleiðingar í för með sér. En mig langar aðeins að tala um formið á þessu regluverki sem við erum í þann mund að fara að samþykkja, við erum nú í 3. umræðu á þessu máli þannig að það er á lokasprettinum hérna innan þingsins og þar af leiðandi er mjög stutt í að það verði að lögum. En það sem við erum að innleiða er í raun tilraunaregluverk og það er eitthvað sem ég hef ekki heyrt áður í þessum sal að við séum að gera en er ótrúlega merkilegt út af fyrir sig.

Ég heyrði fyrst um tilraunaregluverk sem tengdist gervigreind í alþjóðastarfi sem ég hef verið í Evrópuráðinu og líka hjá OECD í tengslum við þróun á gervigreindarbúnaði hvers kyns. Þetta sem við ræðum hér er auðvitað ákveðinn angi af því. Í hinum svokallaða gervigreindarpakka Evrópusambandsins eða AI Act er mikið talað um svokallaða, ef ég þýði það á íslensku, sandkassalöggjöf eða „sandbox legislation“ sem er í raun kannski týpa af þessu sem við erum að gera núna. Það er búinn til ímyndaður sandkassi utan um tilraunaverkefni eða þróun á hugbúnaði sem fyrirtæki eru með þar sem þau geta prófa sig áfram með ákveðinn hugbúnað í svona regluverkslimbói meðan þróun hugbúnaðarins á sér stað og þau geta gert þetta örugg um að þau séu ekki að fara á svig við einhverjar reglur á meðan þessi þróun fer fram. Það er verið að fylgjast með áhrifum tækninnar á sama tíma til þess líka að auðvelda svo þeim sem setja reglurnar að setja reglurnar eftir að þessari tilraunastarfsemi er lokið. Þetta er samvinnuverkefni á milli þeirra sem setja reglurnar og þeirra sem eru að þróa búnaðinn.

Svona sandkassaregluverk er væntanlega það sem koma skal. Þingmenn hafa mikið verið að velta fyrir sér, löggjafinn, ríkisstjórnir: Hvernig geta þing, þjóðþing sem taka tíma sinn í að setja lög og reglur, brugðist við? Það þarf auðvitað í lýðræðislegu kerfi talsverðan undirbúning til að setja lög og til að breyta lögum. Það þarf að fara í samráð, það þarf að semja lögin, það þarf að finna út úr því nákvæmlega hvað á að standa í þeim, það þarf að þróa þau áfram. Það þarf að taka við breytingartillögum, það þarf að fara í gegnum þrjár umræður, það þarf að fara í umsagnarferli. Það eru ótrúlega mörg skref sem þarf að taka og þetta getur verið alveg ótrúlega langt ferli og þunglamalegt kerfi. Þegar við horfum á þróun gervigreindar og þessarar tækni sem er að eiga sér stað núna þá er þetta kerfi allt of svifaseint, getur ekki brugðist við í takt við hraðann sem tæknin er að breytast á. Þess vegna hefur komið inn ákveðin nýsköpun þegar kemur að lagasetningu og regluverki og framþróun á því þar sem er sett einmitt svona tilraunaregluverk eins og það sem við erum að innleiða núna. Það er auðvitað út af fyrir sig merkilegt fyrirbæri, eitthvað sem við höfum aldrei áður gert og held ég að það eigi eftir að verða töluvert algengara þegar fram líða stundir vegna þess einmitt hvað þróunin er hröð. Og eins og ég var að segja þá er þetta einmitt búið að vera viðfangsefni á öllum þeim ráðstefnum sem ég hef sótt um þróun gervigreindar, um þær öryggishættur sem felast í þeim gríðarlegum framförum sem gervigreindin er að taka um þessar mundir og spurningin er alltaf þessi: Hvernig getur þunglamalegt þing brugðist við tækni sem flýgur á þessum hraða áfram og langt fram úr okkur? Það sem koma skal er m.a. þetta, tilraunaregluverk til að athuga hvort þetta regluverk virkar í kringum þetta nýja dót sem er verið að prófa núna hjá þeim sem kunna á dótið, sem er ekki fólkið á þingi, get ég sagt ykkur, vegna þess að langflestir þingmenn skilja hvorki upp né niður í tækninni sem þeir eru svo að setja reglurnar um. Það skiptir þannig töluverðu máli að við setjum okkur inn í mál sem þessi, að við reynum að skilja hvað dreifð færsluskrártækni er og hvað hún felur í sér, til hvers hún er og hvers vegna það skiptir máli að hafa regluverk í kringum hana.

Þá sný ég mér að hinu eiginlega efni máls, virðulegi forseti. Ástæðan fyrir því að það skiptir máli að hafa regluverk utan um þetta er auðvitað sú að þetta er það sem koma skal. Þetta hefur, eins og hv. þm. Eyjólfur Ármannsson kom inn á rétt áðan, alla burði til þess að koma í staðinn fyrir það þunglamalega kerfi sem við höfum þegar við erum að kaupa fasteignir eða bíla eða aðra hluti þar sem þarf að staðfesta með öruggum hætti að viðskiptin hafi átt sér stað með lögmætum hætti, eitthvað sem kostar mikla peninga, tíma og orku að fara í gegnum eins og staðan er núna en getur orðið miklu hraðara, skilvirkara og öruggara í framtíðinni.

En það er ekki bara þetta sem þessi tækni felur í sér og felur í sér framfarir heldur líka það sem ég var að koma inn á áðan í andsvari mínu við hv. þm. Eyjólf Ármannsson sem snýr að því hvernig peningaþvættislöggjöf og löggjöf um varnir gegn fjármögnun hryðjuverka hefur verið misbeitt til að koma höggi á mannréttindaverði, á mannréttindafrömuði víðs vegar um heiminn. Ég þekki t.d. eina baráttukonu frá Póllandi sem lenti í því að hennar ríkisstjórn fór svona á eftir henni, þau flögguðu henni sem glæpamanni í þessu kerfi, þ.e. að hún væri þá að fjármagna hryðjuverk með sinni mannréttindastarfsemi sem gerði það að verkum að í sínu heimalandi, nú man ég ekki hvar það er, það skiptir kannski ekki öllu máli, það var einhvers staðar í Vestur-Evrópu, gat hún ekki fengið neinn bankareikning, gat ekki tekið við millifærslum, gat ekki hreyft sig í raun lönd né strönd, borgað fyrir vörur eða þjónustu, borgað leigu og allt það sem við þurfum að gera við peningana okkar. Ímyndið ykkur ef við gætum ekki nálgast lengur peninga af því að það væri bara enginn banki opinn fyrir ykkur og þið gætuð heldur ekki notað millifærslukerfi eins og Western Union eða vestræna bandalagið — ég veit ekki hvort það er þörf á því að ég þýði nafnið í ljósi þess að þetta er bara nafn á fyrirtæki en ég geri það nú samt sem áður, virðulegi forseti — vegna þessara reglugerða, vegna þessa samstarfs. Og þá er þessi dreifða færsluskrártækni síðasta von fólks í þessum sporum. Það eru mjög margir sem lenda í þessum ofsóknum þvert yfir landamæri. Við í Evrópuráðinu köllum þetta „transnational repression“, með leyfi forseta, sem eru ofsóknir sem ná yfir landamæri, það væri kannski ágætisþýðing. Þetta er hluti af því. Það er auðvitað margt töluvert hættulegra í orðsins fyllstu merkingu sem ríkisstjórnir gera, senda m.a. launmorðingja og annað á eftir fólki. Þetta eru t.d. stjórnvöld í Aserbaídsjan grunuð um að gera og við þekkjum auðvitað mörg dæmi þess að Rússland hafi gert það. En þetta er eitt af tækjunum sem átókratískar ríkisstjórnir nota til þess að elta fólk sem veitir þeim viðnám yfir landamæri til að gera líf þess óbærilegt. Þessi dreifða færsluskrártækni gerir fólki kleift að lifa svo gott sem eðlilegu lífi þrátt fyrir allar þessar hindranir sem eru settar í veg þess af heimalandinu. Það hefur auðvitað líka alveg ótrúlega spennandi tækifæri í för með sér.

Og svo er það auðvitað allur umsýslukostnaðurinn sem við gætum losnað við frá bönkunum okkar sem eru nú duglegir að smyrja á okkur færslugjöldunum og þjónustugjöldunum og hinum og þessum gjöldum fyrir hluti sem eru almennt orðnir frekar sjálfvirknivæddir nú þegar. Þetta opnar á ótal möguleika fyrir einmitt nýsköpun í þessum geira, ódýrari og notendavænni þjónustu með færri milliliðum og færri milligönguaðilum sem gerir það að verkum að við þurfum ekki lengur að eiga í viðskiptum við fullt af einhverjum fjármálafyrirtækjum bara til að lifa hinu daglega lífi.

Þetta hjálpar einmitt líka til við það sem hv. þingmenn Andrés Ingi Jónsson og Eyjólfur Ármannsson voru að ræða hér áðan sem hefur með friðhelgina að gera þar sem auðvitað hefur hallað mjög undan fæti þessi árin og undanfarin ár vegna þess að það er hægt að rekja nokkurn veginn allt sem við gerum, hvort sem það er hverju við flettum upp á internetinu eða veraldarvefnum eða hvert við förum, hvert við ferðumst, hvað við borgum fyrir. Reglulega koma upp í þessu samfélagi kröfur um að við látum nú af þessum reiðufjárviðskiptum og leggjum gjaldmiðilinn í í því formi bara niður vegna þess að það er svo auðvelt að nota hann í peningaþvætti. En það er nú einu sinni þannig að það þarf ekki að skrá allt sem við kaupum. Ríkið þarf ekki að vita hvaða vínflösku þú keyptir í ríkinu. Það kemur ríkinu bara ekkert við.

Þessi snjallvæðing sem hefur orðið á öllum okkar viðskiptum hefur kosti og galla. Auðvitað er það rosalega þægilegt að þurfa ekki alltaf að ganga um með búnt af seðlum og týna þeim jafnvel, vera bara með símann og geta lokað á hann ef þú týnir símanum o.s.frv. Þetta hefur alls konar hagræðingu í för með sér. Þessi dreifða færsluskrártækni hefur þann kaupauka í för með sér að það er ekki hægt að rekja hvað þú notar peningana í, sem er hægt með öllum þessum greiðslulausnum sem við notum nú. Auðvitað er það vissulega oftast gert með úrskurði eða einhverju slíku en það er ekki loku fyrir það skotið að það kunni að vera misnotað og kunni að vera þefað uppi af óprúttnum aðilum til að misnota á einn eða annan hátt.

Eins og hefur verið bent á þá getur þessi tækni líka stóraukið skilvirkni og minnkað kostnað við verðbréfaviðskipti þar sem öll sölukeðjan getur fallið undir í raun eina og sömu bók. Það hefur þurft að aðskilja upphaflega uppboðið og svo þennan eftirmarkað eða þá uppboðið sjálft og svo útdeilinguna á bréfunum, það hefur alltaf þurft að hafa það í sitthvoru kerfinu og gera það frá jafnvel sitthvorum aðilanum. En með svona tækni er hægt að gera þetta allt í einni keyrslu sem auðvitað mun spara töluvert og mun líka auka öryggi og minnka líkur á misnotkun og þar af leiðandi valda því að við erum kannski að borga aðeins minna í vasa fólks sem græðir í raun á því einu að færa núll til og frá á einhverjum pappírum vegna þess að tæknin er farin að gera það fyrir okkur líka með öruggum og áreiðanlegum hætti sem er mjög erfitt að svindla á.

Ég þykist nú ekki ætla að geta staðið hér og útskýrt nákvæmlega tæknilegu útfærsluna á því hvernig þetta virkar. Nú hafa nokkrir mætir menn hér reynt að útskýra það fyrir mér ítrekað og ég held að ég skilji þetta svona hugmyndalega séð en það sem ég skil við þetta er að þetta er leið til að auðkenna upplýsingar og viðskipti á dreifðan hátt sem þýðir einmitt að við þurfum ekki að reiða okkur á Landsbankann eða Íslandsbanka eða Glitni eða Kaupþing, svo við rifjum nú upp gamla tíma, til þess að geta átt í jafnvel stórum viðskiptum. Þar af leiðandi kannski missa þeir líka þessa markaðsráðandi stöðu sem þeir hafa gagnvart neytendum sem gerir þeim kleift að rukka okkur um svo ótrúlega marga peninga fyrir eitthvað sem þeir eyða nánast engri vinnu í né orku í að gera. Það er auðvitað jákvætt út af fyrir sig. Við vitum auðvitað að bankar á Íslandi er alveg sérlega duglegir við að fá peninga fyrir að gera ekki neitt og að þeir hafa verið sérlega duglegir við að nota þá í sinn eigin hagnað frekar en til hagsbóta fyrir notendur, t.d. með því að lækka vextina okkar sem eru nógu háir fyrir. Þannig að þetta er svona að ákveðnu leyti til höfuðs þeim.

Það voru uppi spurningar um það hér fyrr í þessari umræðu, svo ég ljúki nú máli mínu á því, hvort þessi tækni út af fyrir sig og þetta regluverk gæti orðið til þess að skekkja samkeppni vegna þess að fjársterkari fyrirtæki gætu nýtt sér þessa tækni en ekki önnur. Ég vil leyfa mér að segja að þetta sé í þessu tilfelli öfugt, þ.e. þetta skekkir ekki samkeppni. Auðvitað er það svo að ef þú átt pening til þess að fjárfesta í rannsóknum og þróun á ákveðinni tæknilausn þá stendur þú framar öðrum samkeppnislega séð. En það er ekki eitthvað sem skekkir samkeppni út af fyrir sig. Ef ríkið færi að gefa sumum þessar lausnir eða leyfði bara sumum að nota þær en öðrum ekki þá gætum við verið að tala um að þetta væri einhvern veginn óeðlilegt í skilningi þess hvað telst vera óeðlileg samkeppni eða samkeppnishamlandi. Þvert á móti held ég reyndar að með því að heimila þessa tækni komist minni aðilar inn á markaðinn með ódýrari lausnir en þær sem bankinn er að bjóða. Þetta gæti með góðu móti, án þess að ég sé að lofa því að það gerist, eflt samkeppni á fjármálamarkaði og gert það að verkum að neytendur fái ódýrari og betri lausnir gagnvart því hvernig þeir fara með peningana sína.