innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Þetta finnst mér mjög áhugaverð spurning, hvort þetta gangi gegn markmiði tækninnar. Kannski að einhverju leyti en ég held að þetta verði ekkert endilega stöðvað með þessari reglugerð heldur snúist þetta um starfsleyfi fyrir fyrirtæki sem vilja hasla sér völl á t.d. fjármálamarkaði með þessa tækni og þá ertu að búa til hugbúnað fyrir viðskiptaheiminn, svið mannlífsins sem er ótrúlega reglað nú þegar, það eru mjög skýrar og strangar reglur sem gilda um t.d. hlutabréfaviðskipti eða einhver afleiðuviðskipti og hvað þetta allt heitir sem á sér stað þar. Ef það væri ekki beinlínis gefið leyfi fyrir því að notast við þessa tækni og gefa starfsleyfi til að þróa ákveðna lausn, t.d. búa til verðbréfamiðlunarkerfi sem aðilar geta svo byrjað að nota sér til hægðarauka og til að lækka kostnað hjá sér og annað, þá er ég a.m.k. á því að það þyrfti að vera eitthvað sem heimilaði það, bara út af því regluverki sem gildir nú þegar. Þú þarft að ganga í gegnum 75 skref hérna til þess að mega gerast verðbréfamiðlari, til þess að geta talist vera ábyrgur aðili í þessum skilningi. Og nú er ég bara að lýsa þessu ótrúlega abstrakt og alls ekki nákvæmt. Í þessu tilfelli og í þessu samhengi þá myndi ég halda að það sé vel réttlætanlegt að gera þetta og mikilvægt einmitt að það sé ákveðinn rammi utan um þessa framþróun og þetta gefur okkur auðvitað, að þessu sögðu, líka aðgang að öllum markaði Evrópusambandsins varðandi þróun á þessum hugbúnaðarlausnum. Við gætum líka verið að markaðssetja þær úti, við gætum — ég segi við, þ.e. fólk á Íslandi — búið til einhverja lausn og boðið hana upp á markaði annars staðar í Evrópu og til þess þurfum við að vera með í þessu regluverki, regluverki sem nota bene, eins og ég kom inn á í upphafi minnar ræðu, er tilraunaregluverk þannig að það verður áhugavert líka að sjá hvernig það þróast. Ég verð að koma að seinni spurningu hv. þingmanns í seinna andsvari.