154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[20:41]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tel einmitt að það hefði mátt eiga sér stað töluvert meiri umræða um þetta form á lögum, að við séum að setja einhvern tilraunaramma utan um þetta sem mér finnst í sjálfu sér mikilvægt og er góð nýbreytni. Þetta er aðeins öðruvísi heldur en að setja inn endurskoðunarákvæði í lög vegna þess að þar segirðu ekki fyrir fram: Þetta er tilraunaregluverk í kringum nýjan hlut sem við ætlum að prófa núna í einhvern ákveðinn tíma og meta stöðugt hvernig gengur og þróa eftir því. Þannig að þetta er aðeins öðruvísi nálgun heldur en að búa til nýja heildarlöggjöf, eins og t.d. um Menntasjóð sem hv. þingmaður kom inn á, og ætla svo að fara í einhverja endurskoðun á því. Hvað varðar síðari spurningu hv. þingmanns í fyrra andsvari sem ég náði ekki að koma að í mínu fyrra svari þá held ég einmitt að það sé alveg ótrúlega mikilvægt, sérstaklega þegar við erum að tala um auðlindir sem hafa ekki verið nýttar áður, eins og í því tilfelli sem hv. þingmaður minntist á, að stjórnvöld séu fljót að bregðast við og setji skýran ramma til að fyrirtæki sem eru að þróa nýja vöru á markaði og nota til þess auðlindir viti til hvers er ætlast af þeim og þau geti áttað sig á því í raun hvernig þau geti þróast og hvað þau megi gera með sína hugmynd, sína vöru. Þetta eru auðvitað að þessu leyti alveg sambærileg dæmi nema í tilviki dreifðrar færsluskrártækni erum við auðvitað að tala um tæknilausn sem reyndar þarf alveg ótrúlega mikla orku og þar af leiðandi líka auðlindir þannig að við erum komin í svona hálfan hring með þetta. En á Íslandi erum við oft mjög sein að setja regluverk um nýja atvinnuvegi og annað slíkt eins og lagareldið ber svo sannarlega vitni um.