innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir fína ræðu og ágætisandsvör þar sem hún fór vel yfir málið að mörgu leyti. Mig langar að spyrja hv. þingmann um atriði sem ég held að hún hafi komið að innan Evrópuráðsins, mér skilst að hún sé formaður mannréttindanefndar Evrópuráðsins, og hvort það hefur, í þeirri nefnd sem hún stýrir þar, verið fjallað um mannréttindi innan fjármálaheimsins og þá tækni sem er innan þessa heims, fjártækniheimsins, getum orðað það þannig. Hún spurði mig um peningaþvætti og annað slíkt en hvað t.d. um rétt fólks til að hafa bankareikning? Ég veit að það er tilskipun Evrópusambandsins sem segir að viðskiptavinir eigi rétt á einföldum bankareikningi til að geta stundað viðskipti sín. Hefur verið fjallað um það á þeim vettvangi, réttinn til bankareiknings og líka rétt til heimabanka og greiðslukorts? Þetta eru orðin grundvallaratriði í lífi fólks, svo fólk geti komist af einfaldlega, það hafi aðgang að heimabönkum og bankareikningum rafrænt og ég spyr líka hvort það sé verið að misnota þá tækni gegn viðskiptamönnum. Þetta er náttúrlega það sem fylgir öllum mannlegum samfélögum sem eru búin að færast yfir á netið, það eru mannréttindin sem skipta máli. Það er búið að fjalla mikið um hatursorðræðu á netinu, einelti á netinu og annað slíkt, en það er líka hægt að útskúfa fólki hvað varðar fjármálaþjónustu. Það hefur sérstaklega verið áberandi með stjórnmálamenn. Nú eru stjórnmálamenn áhættuhópur þegar kemur að peningaþvætti sem bankar líta sérstaklega á, ég kem kannski að því betur í seinna andsvari mínu.