innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Ég var eitt sinn formaður laga- og mannréttindanefndar Evrópuráðsþingsins, en það hætti ég að vera árið 2020. Ég er núna, held ég, þriðji varaformaður þess en það fylgja því engin völd, get ég sagt hv. þingmanni. Við höfum mikið rætt baráttuna gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka í tvennu samhengi, annars vegar hvernig þessum lögum er misbeitt gagnvart mannréttindafrömuðum og þeir eltir upp. Meira að segja það að þú eigir rétt á að fá bankareikning gerir þér miklu erfiðara fyrir og nánast ómögulegt að fá reikning þegar það er búið að flagga þér í þessum kerfum öllum hjá bönkunum. Þetta hefur komið mikið til tals og það er skýrsla í vinnslu, ég er nú ekki með þá skýrslu en það er skýrsla í vinnslu í Evrópuráðinu varðandi það. En síðan er auðvitað hin hliðin á teningnum sem er að peningaþvætti er auðvitað stórkostlegt vandamál um alla álfuna. Það er nátengt spillingu. Það er nátengt því að ríki eru holuð að innan af þeim sem eru í réttri aðstöðu til að gera það og peningum komið fyrir á aflandseyjum eða ekki einu sinni aflandseyjum heldur einhvers staðar í London eða á öðrum stöðum sem eru þægilegir áfangastaðir fyrir peninga sem búið er að stela úr landi. Við höfum líka mjög virkt kallað eftir því að á ábyrgan hátt vinni fjármálaeftirlitsstofnanir og fjármálaeftirlitslögregla um alla álfuna saman að því að hafa uppi á fjármunum sem eru að fara svona peningaþvættisleiðir í gegnum kerfin til þess að stöðva spillingu og vinna gegn því að lýðræðisríki brotni niður í eitthvað miklu verra vegna vantrausts og rotinna innviða út af spillingu.