154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[20:48]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og þetta er mjög áhugavert. Ég hef sjálfur unnið með peningaþvætti, byrjaði 2006 og fór þá til FATF í París. Það var þriðja matið á Íslandi og það kom mér ekki á óvart að við lentum á gráa listanum með ríkjum eins og Írak, Afganistan og fleiri ríkjum. Ég verð hins vegar að segja eins og er, nú erum við stjórnmálamenn sem erum í áhættuhópi, að ég tel að bankar séu að misnota þetta gagnvart stjórnmálamönnum. Það er dæmi frá Bretlandi, Nigel Farage t.d. var neitað um bankareikning. Ég hef nú bara sjálfur lent í því hreinlega, það er verið að biðja um skattframtöl þrjú ár aftur í tímann. Ég er í bankaviðskiptum í þremur bönkum hér á landi og einn banki spurði mig um skattframtöl þrjú ár aftur í tímann. Það var ekki gert erlendis. Þeir eru raunverulega að brjóta persónuverndarlöggjöfina með því að heimta skattframtöl. Það var einhver milljón á reikningnum, þeir vissu alveg að þetta kom frá Alþingi Íslendinga eða ríkinu en þá eru þetta gæði upplýsinganna. Þetta var rétt eftir að ég var kosinn á þing. Þannig að ég tel að þetta sé ekki bara úti í hinum stóra heimi. Þetta er líka hér á landi, hrokinn algerlega botnlaus hjá þessum stofnunum þegar kemur að eftirfylgni. Það eru komnar sektir, bæði 1.200 millj. kr. sekt á Íslandsbanka og svo er verið að sekta þá aftur núna út af peningaþvætti. Þannig að ég held að það sé líka hægt að misbeita eftirfylgninni, bæði út af vanþekkingu og fúski en líka kerfisbundið. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann að er hvort það hafi komið líka til umræðu mannréttindi út af þessari nýju tækni sem er dreifð færsluskrártækni. Það kom fram í andsvari hv. þingmanns við mig áðan að þetta væri eini vettvangurinn fyrir mannréttindafrömuði og stjórnarandstæðinga í alræðisríkjum til að færa peninga á milli og stunda eðlileg viðskipti til að sjá sér farborða. (Forseti hringir.) Var þetta tilkynningarskyldukerfi t.d. hjá Interpol rætt eitthvað, að það væri verið að misnota það og (Forseti hringir.) hvort bankar á Vesturlöndum og aðildarríkjum Evrópuráðsins ættu virkilega að hlusta á þær tilkynningar?