154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[20:53]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Það hefur verið gaman að hlusta á þessa umræðu í dag vegna þess að hún hefur náð að fylla inn í ákveðið gat sem mér fannst vera í umfjöllun nefndarinnar í þessu máli. Þó að hér sé bara um að ræða innleiðingu á tilraunaregluverki utan um rafmyntir og annað þá eru svo miklu stærri spurningar sem búa að baki sem við þurfum að ræða á einhverjum tímapunkti og það hefði verið upplagt að gera það í umfjöllun nefndarinnar í nefndaráliti, við mögulega gerum það þegar kemur regluverk í fastara formi eftir endurskoðunartímabilið 2026. Ég vona reyndar, forseti, að Alþingi Íslendinga taki sig til og ræði þetta á dýptina í millitíðinni þannig að við höfum sjálfstæða afstöðu til þessarar þróunar sem geti síðan haft áhrif á það hvernig okkar fulltrúar í Brussel beiti sér gagnvart regluverkinu þegar það er í þróun, sem við vitum að mun verða.

Ég talaði aðeins í 1. umræðu þessa máls og langar að tæpa á svipuðum punktum núna og ég gerði þá en fæ kannski að byrja bara á því að tala um orðið sýndareignir sem við notum stundum hérna í þessu samhengi, aðallega vegna þess að mér finnst það dálítið skondið. Við tölum um sýndareignir í tengslum við rafeyri og annað sem tengist þessari nýju tækni. En þar með horfum við fram hjá því að allir peningar eru sýndareignir. Verðgildi 1.000 kr. seðils byggir ekki á neinu öðru en einhverju samkomulagi á milli fólks um það að þessi 1.000 kr. seðill skuli hafa ákveðið verðgildi. Það er bara ákveðinn samfélagssáttmáli um gjaldmiðla til þess að þeir gætu leyst af hólmi það kerfi sem var til staðar áður en gjaldmiðlar voru fundnir upp. En það virði er bara tilbúningur í grunninn þannig að alltaf þegar við höfum pening í höndunum, hvort sem hann er rafrænn eða úr pappír eða málmi, er gildið bara einhvers konar sýnd. En það sem við hins vegar erum að horfa á núna á síðustu áratugum er að skilgreiningarvaldið er að færast til. Það að stýra því hversu mikið af fjármunum er í umferð, það að stýra fjármálakerfinu hefur verið einn af hornsteinum fullveldis ríkja. Seðlabankar hafa gegnt lykilhlutverki í rekstri ríkisins og miðstýring á útgáfu reiðufjár hefur verið einn af lyklunum. Það sem reiðufé hefur hins vegar haft með sér er að þrátt fyrir að það sé afskaplega miðstýrt hver gefur það út er algerlega ósýnilegt hver notkunin er. Friðhelgi einkalífs þeirra sem eru með 1.000 kr. á pappír er nánast algert.

Á síðustu öld voru fundin upp greiðslukort og þar með misstu seðlabankarnir ákveðið miðstýringarvald vegna þess að greiðslukortafyrirtæki fóru allt í einu að geta velt í rauninni nýrri tegund peninga í gegnum kerfið, engu að síður mjög takmörkuð dreifstýring á útgáfunni og mikil yfirsýn og það sem þessu fylgdi var líka mjög sýnileg notkun. Friðhelgin minnkaði. En þarna vegast á þessir tveir pólar, hver stýrir útgáfunni og hversu vel er fylgst með notkuninni. Síðan koma eins og skrattinn úr sauðarleggnum rafmyntirnar og umturna þessu kerfi að því leytinu að það er algerlega dreifstýrt hvernig útgáfan er og það er algerlega ósýnilegt hvernig notkunin er. Þetta hugnast þeim sem fyrir eru á fleti ekki nógu vel og vilja koma einhverjum böndum á það. Ég skal alveg taka undir með þeim sjónarmiðum að það sé ýmislegt í tækninni, ýmis áhætta sem fylgir því sem mig langar að kalla hérna kryptó, kryptóeignir. Það er ýmislegt sem fylgir kryptó sem eru kannski óþarflega þægilegar leiðir fyrir glæpahópa, jafnvel hryðjuverkahópa, til að eiga nafnlaus viðskipti og fela þannig starfsemi sína fyrir yfirvöldum. En það breytir því ekki að sá ávinningur fyrir glæpa- og hryðjuverkahópana er alveg jafn mikill ávinningur fyrir t.d. fjölda einstaklinga í fátækum löndum sem hingað til hafa verið útilokaðir frá fjármálaþjónustu. Ávinningurinn við tæknina er að það er hægt að gera greiðslumiðlun skilvirkari, öruggari, ódýrari og aðgengilegri. Þessi anarkismi, ef hann er rétt beislaður, getur verið til mikillar framþróunar í samfélaginu. Þess vegna er áhugavert að skoða hvernig verður hægt að nýta tæknina án þess að hefta hana of mikið.

Mig langar t.d. að benda á skýrslu sem ég nefndi hér í 1. umræðu, skýrslu starfshóps um tækifæri og áhættur á sviði stafrænnar fjármálaþjónustu sem byggist á dreifðri færsluskrá. Ansi langur titill en góð skýrsla sem kom út á síðasta ári í apríl. Þar er einmitt bent á möguleikana á því, eins og hefur verið talað um hér í umræðunni, að nota dreifðar færsluskrár til að gera t.d. alls konar samninga, snjallvæða ýmsa samninga og auðvelda viðskipti, en þar að auki væri hægt að nota tæknina til þess að byggja upp einhvers konar sameiginlega innviði seðlabankarafeyris. Það finnst mér mögulega ein mest spennandi hugmyndin, að finna leið til þess að færa valdið frá þessum óheftu fjármálastofnunum sem við eigum í samfélaginu sem hefur verið rætt í dag að maki oft krókinn á ýmiss konar þjónustugjöldum, yfir til einhvers aðila sem hefur þá almannahagsmuni í fyrirrúmi sem Seðlabankinn á að gera. Þetta er eitthvað sem væri spennandi útfærsla til þess að ná fram á sama tíma lágum kostnaði, skilvirkni og öryggi og smyrja hjól samkeppninnar í fjármálakerfinu.

Þessu taumhaldi má hins vegar ekki beita of víðtækt eða af of mikilli hörku vegna þess að rafeyrir er mikilvægt verkfæri fyrir fólk sem við þurfum eiginlega að standa vörð um. Hér er ég ekki að tala um glæpahópana eða hryðjuverkasamtökin heldur t.d. fólk sem er að berjast fyrir mannréttindum í löndum þar sem lýðræðið er ekki í hávegum haft. Við gætum nefnt t.d. stjórnarandstæðinga í Belarús. Það er fólk sem bæði verður fyrir því að vera sett á ýmsa svarta lista hjá alþjóðlegum fjármálaeftirlitsaðilum en áður en það gerist er það mögulega farið að verja sig fyrir þeirri sviðsmynd með því að færa sig úr hefðbundnu bankakerfi þar sem þessi hætta er fyrir hendi og yfir í hið óhefðbundna kerfi rafmyntar til þess að geta verið með neyslufé fyrir sitt daglega líf en líka til þess að geta tekið á móti stuðningi frá þeim sem vilja hjálpa þeim við mannréttindabaráttu í sínu landi.

Þetta er togstreita sem við þekkjum auðvitað frá gamalli tíð, vil ég segja. Í Brussel þar sem þetta regluverk hér verður til hefur í þó nokkurn tíma verið mikil undiralda gegn reiðufé, að hluta til held ég að það sé vegna þess að hagsmunasamtök fjármálafyrirtækja vilja losna undan þeim kostnaði sem fylgir því að höndla með þessa fýsísku vöru sem peningar eru, seðlar og mynt. Það er kannski skiljanlegt hjá fjármálastofnunum sem hugsa umfram allt um eigin gróða. En hin hliðin er síðan að eftirlitsyfirvöld líta gjarnan á reiðufé sem leið fyrir óþægilega hópa að eiga nafnlaus viðskipti og fela starfsemi sína sem þeir geta vissulega. En á sama tíma er reiðufé oft hið eina sem stendur ýmsum jaðarsettum hópum samfélagsins til boða, bæði fátæku fólki almennt eða fólki sem einhverra hluta vegna passar ekki fullkomlega inn í samfélagið, er kannski ekki með kennitölur eða bankareikninga eða hvað það er, en þarf að sjá sér farborða. Aðförin gegn reiðufénu hefur komið niður á þeim sem síst skyldi á meðan glæpahóparnir og hryðjuverkahóparnir sem henni var ætlað að ná til finna sér einfaldlega aðrar leiðir. Þeir hafa burði til að þefa uppi aðrar leiðir til að fjármagna sig og eiga nafnlaus viðskipti.

Sama held ég að geti orðið ef regluverk um dreifða færsluskrá, ef reglur um rafmyntir verða illa útfærðar, þá geti mistekist að koma böndum á slúbbertana sem ætlunin er að ná utan um en það verði gengið á rétt sárasaklauss almennings til að eiga nafnlaus viðskipti af hvaða ástæðum sem viðkomandi vill. Ég held að við hljótum öll að geta sýnt því einhvern skilning í samfélaginu eins og það hefur þróast þar sem eftirlit er orðið mun meira en það var fyrir örstuttu síðan, þar sem skráning og úrvinnsla á því eftirliti er þar að auki farin að taka stórstígum framförum og það er hægt að teikna upp miklu nákvæmari myndir af öllum okkar dýpstu tilfinningum, bara með því að skoða hvernig við högum okkur á netinu, hvernig við notum símann okkar og hvar við straujum kortin okkar. Með þessu má teikna upp prófíl af okkur sem ég held að fæst okkar myndu vilja afhenda hverjum sem er þannig að auðvitað sýnir maður því skilning að fólk vilji eiga þetta einkalíf sitt fyrir sig sjálft, alla vega að við séum ekki að innleiða reglur sem gera það algjörlega ómögulegt.

Þetta var svona í stuttu máli það sem ég kom inn á í 1. umræðu með smá viðbót í ljósi þess sem hefur verið rætt hér í dag. Þetta hefur verið mjög góð umræða í dag og ég vona bara að við tökum hana aftur hér í þingsal áður en við fáum næsta pakka í þessu regluverki til okkar í gegnum EES-samninginn vegna þess að hérna er einhver grundvallarspurning að baki líka um það hvernig við viljum að samfélagið liti út sem ég vil trúa að Alþingi (Forseti hringir.) geti svarað áður en við fáum svarið að utan. Þar með getum við kannski haft meiri áhrif á það hvernig niðurstaðan verður í Brussel.